Heilög Ritning

Hérna ætla ég að setja inn sálma og fleira ritningartengt, sem er að heilla mig.

Ég mun uppfæra þessa síðu nokkuð oft, reyni að hafa ekki bara alltaf það sama.

.

.

Jesú hrópaði: “Jerúsalem, Jerúsalem! Þú sem líflætur spámennina og grýtir þá, sem sendir eru til þín! Hversu oft vildi ég safna börnum þínum, eins og hænan safnar ungum sínum undir vængi sér, og þér vilduð eigi.

(Matt.23 – í bláendann – Jesú hefur aldrei verið eins reiður en hann líkir sér samt við hænu, einsog er svo í tísku í dag að hafa hænurnar með í öllu, samanber þetta)

.

Úr Síraksbók:

Gef sál þína eigi sorg á vald,
angra ekki sjálfan þig á áhyggjum.
Gleði í hjarta er mönnum lífgjafi,
gleði manns fjölgar lífdögum.
Dreif huga þínum og hresstu hjartað,
haltu harmi langt frá þér
því að hugarvíl hefur mörgum eytt,
það hefur engum hjálpað hið minnsta.
Öfund og reiði stytta ævina,
áhyggjur gera manninn gamlan um aldur fram.
Þeim sem á bjart sinni og snæðir með gleði
mun verða gott af því sem hann neytir.
Síraksbók – 30.21-25

Davíðssálmur #25

Til þín, Drottinn, hef ég sál mína,
Guð minn, þér treysti ég.
Lát mig eigi verða til skammar,
lát eigi óvini mína hlakka yfir mér.
Hver sá er á þig vonar, mun eigi heldur verða til skammar,
þeir verða til skammar, er ótrúir eru að raunalausu.
Vísa mér vegu þína, Drottinn,
kenn mér stigu þína.
Lát mig ganga í sannleika þínum og kenn mér,
því að þú ert Guð hjálpræðis míns,
allan daginn vona ég á þig.
Minnst þú miskunnar þinnar, Drottinn, og kærleiksverka,
því að þau eru frá eilífð.
Minnst eigi æskusynda minna og afbrota,
minnst mín eftir elsku þinni
sakir gæsku þinnar, Drottinn.
Góður og réttlátur er Drottinn,
þess vegna vísar hann syndurum veginn.
Hann lætur hina hrjáðu ganga eftir réttlætinu
og kennir hinum þjökuðu veg sinn.
Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti
fyrir þá er gæta sáttmála hans og vitnisburða.
Sakir nafns þíns, Drottinn,
fyrirgef mér sekt mína, því að hún er mikil.
Ef einhver óttast Drottin,
mun hann kenna honum veg þann er hann á að velja.
Sjálfur mun hann búa við hamingju,
og niðjar hans eignast landið.
Drottinn sýnir trúnað þeim er óttast hann,
og sáttmála sinn gjörir hann þeim kunnan.
Augu mín mæna ætíð til Drottins,
því að hann greiðir fót minn úr snörunni.
Snú þér til mín og líkna mér,
því að ég er einmana og hrjáður.
Angist sturlar hjarta mitt,
leið mig úr nauðum mínum.
Lít á eymd mína og armæðu
og fyrirgef allar syndir mínar.
Lít á, hversu margir óvinir mínir eru,
með rangsleitnishatri hata þeir mig.
Varðveit líf mitt og frelsa mig,
lát mig eigi verða til skammar, því að hjá þér leita ég hælis.
Lát ráðvendni og hreinskilni gæta mín,
því að á þig vona ég.
Frelsa Ísrael, ó Guð,
úr öllum nauðum hans.

1 ummæli

  1. DoctorE sagði,

    No comment… ;)

Rita ummæli