Getraun: Hversu gömul er baðstrandagellan?
Nú ætla ég að biðja alla um að reyna að svara, það eru stórkostleg verðlaun í boði fyrir þann sem giskar á réttan aldur konunnar. Plís ekki svindla og þið verðið að vera nákvæm. Þið þurfið ekkert að vita hver þetta er…

Eftir nokkra mánuði ætla ég að vera orðin jafn flott og þessi (á bara eftir að finna leið til að koma því í kring)
Ógleymanleg aðvörun
“In Germany they came first for the Communists, and I didn’t speak up because I wasn’t a Communist. Then they came for the Jews, and I didn’t speak up because I wasn’t a Jew. Then they came for the trade unionists, and I didn’t speak up because I wasn’t a trade unionist. Then they came for the Catholics, and I didn’t speak up because I was a Protestant. Then they came for me, and by that time no one was left to speak up.”
Séra Niemoeller
Farið í hund og kött.
Hinn yndislegi Dennis Prager (hægriöfgamaður og repúblikani með meiru) talar hér við hundahvíslarann um heimili þarsem hundar og kettir búa.
Samantekt: það er alls ekki eðlilegt né heilbrigt að lifa dýralausu lífi!
Ég tek að sjálfsögðu fyllilega undir sjónarmiðin sem göfugmenni þessi eru að setja fram og ég er reyndar löngu búin að ákveða að gefa Kassöndru einhverntímann lítinn hvolp eða hund, það mun gerast þegar Guð vill að það gerist (og hundurinn mun svo sannarlega verða hennar hátign undirgefinn, en Karítas á bara eftir að leika við hann því hún er svo yndisleg og góð…)
Af mönnum og bjarndýrum, einsog vanalega.

Það er allt hægt ef viljinn og vitsmunirnir eru fyrir hendi…
Tískuheimurinn riðar til falls!
Það eru engar ýkjur. Sá hryllilegi atburður skeði á tískusýningu í Brasilíu á dögunum, að spikfeitt súpermódel hlassaðist niður göngubrautina og fékk alla í salnum til að grípa fyrir augun, spúa upp hádegisverðinum og þar fram eftir götunum. Fjölmiðlar í Brasilíu eru brjálaðir yfir þessum viðbjóði (rassinum aðallega) enda er Brasilía helst þekkt fyrir að framleiða grindhoraðar módelgellur sem svelta sig til dauða fyrir 25 ára aldur (Blessuð sé minning þeirra)
Þessi tékkneska kusa (Karolína Kurkóva) lætur vonandi ekki sjá sig aftur í landi hinna vannærðu fyrren hún er búin að ná af sér þessum kílóum sem hanga um allt. Brasilíubúar eru greinilega ekki tilbúnir fyrir eitthvað þannig og þykir efalaust skárra að sjá stelpur í kistum heldur en súpermódel með fiturúllur á bakinu (ef við viljum fara í stríð við Brasilíu þá skulum við hóta þeim með mínum bakrúllum, þær gefa þessum ekkert eftir hehe)
Ég meina hvert stefnir þessi heimur ef við leyfum tískuhönnuðum að finnast eða gefa í skyn að “eðlilegt” fólk geti verið fallegt?
Myndir af hlassinu koma hér á eftir, augljóslega eru þær ekki fyrir viðkvæma…

Myndin sem vakti hörðustu viðbrögðin:

…

Gúrkutíðin er búin!!!
Kattaslúður – Kattaslúður

Lennox Lewis hinn frægi boxari elskar ketti!
ég vissi ekki hver hann var rétt áðan en núna er hann sérlegur vinur… Ég get svo séð þennan stóra og myndarlega mann fyrir mér að leika sér við fullt af kettlingum. Umm, yndislegt. Þau (fræga fólkið í Celebrity Apprentice) voru spurð hvort þau elskuðu dýr og Lennox og Tito Ortiz (kærusti Jennu Jameson) stigu fram og voru þá spurðir hvaða dýr? og Lennox sagði “ketti”. Auðvitað, það er ekkert annað svar í stöðunni. Nema kannski ísbirnir. Ég heyrði ekki hvað hinn sagði en hann lítur ekki út einsog kattamaður.
ég hélt að öllum langaði að vita þetta á HINUM SÍÐUSTU OG VERSTU TÍMUM!
Lærlingurinn og LRon
Einsog ég sagði hér á mánudaginn þá kom mjög dularfull og skrítin sending á bókasafnið til mín þann dag. Þetta var kassi frá Danmörku fullur af scientology bókum. Einnig fylgdi með dýrindis bréf þarsem gjöfin var útskýrð og kvittun fylgdi uppá 0.00 – því þetta var algjörlega ókeypis. Ekki hef ég heyrt um annað safn sem hefur fengið svona, amk ekki hér í nágrenninu. Ég veit því ekkert hvað þetta á að þýða eða neitt.
Ég skammast mín fyrir að viðurkenna það en ég horfði ekki á dvd-diskinn í gær, hann er samt afar merkilegur því þetta er eina viðtalið við LRon sem til er. Ég ætla að horfa á hann í kvöld, kannski. Ef ég er ekki of niðursokkin í The Apprentice, þeir þættir eiga hug minn allan þessa dagana, aldrei hefði mig órað fyrir því að kapítalistar og sölumenn gætu verið svona spennandi. Þeir eru æsilegri en wannabe módel, ég trúi varla að ég sé að segja þetta en það er satt. Ég veit hreinlega ekki um betri raunveruleikaþætti, ég er að horfa á bæði bandaríska og breska og er heilluð. Donald Trump er svo frábær. Ok nú skal ég hætta. En ég valdi að skrifa um þessa nýju ástríðu mína hér, í sama pistli og scientology bókamyndirnar eru. Það er of langt gengið að gefa lærlingunum sér blogg.
Staflarnir voru rosalegir…
Hér er ég! Andlitið sem starði upptil mín úr kassanum góða.
Fjórar forsíður af handahófi (bækurnar glansa og ilma vel, ég er samt bara búin að taka örfáar úr plastinu)
Og hér er LRon kallinn mættur á ný, hver déskotinn eða í nafni Xenu hvað á þetta að þýða?
Ég bjó bókunum góðan stað inní geymslu, og hvet hérmeð þá sem langar að sækja sér vitneskju um þessa háþróuðu dellu til þess að leita bara til mín framvegis
Aldrei hefði mig órað fyrir að Scientology ætti eftir að koma á svona óvæntan hátt inní líf mitt. Eftir alla neikvæðnina og hversu heitt ég hataði þennan söfnuð… jækjs. En fyrir þá hlið á mér sem hefur rosalega gaman af bulli, þá er þetta náttúrulega fjársjóður. Í gær opnaði ég t.d bókina: Scientology, a history of man, og get sagt að það blasti við strax í upphafi að sú bók væri góð. Ég opnaði bara einhversstaðar og lenti á kafla sem hét Being Eaten, og hann fjallaði um “að vera étinn”-engröm. Ekki spyrja mig hvað það er, mig langar ekki að vita það.
En komið hingað, þið sem þorið, í hið sérútvalda vísindakirkjubókasafn, og gæðið ykkur á öllu sem LRon bauð uppá.
Kisurnar mínar eru algjörar hetjur.
Já þær eru það þessar elskur. Í gær fóru þær nefninlega eldsnemma um morguninn af stað til dýralæknisins á Egilsstöðum, til þess að fara í aðgerðina sem kemur í veg fyrir barneignir og bossavesen hjá læðum. Karímúsan mín litla (hjúmongúslí stóra öllu heldur) var nefninlega þegar orðin kynþroska og þessvegna fór hún með mömmu sinni í þetta. Hún er bara 6 mánaða gömul og 4 daga núna, en ég þurfti að gefa henni pillu fyrir nokkru síðan því hún var greyið svo mikið fatlafól, stóð bara skilningssljó með bossann sinn útí loftið og það var varla hægt að koma við hana. Kassandra var hinsvegar svo mikil hefðarfrú á sínum tíma að hún varð ekki kynþroska fyrren seint og um síðir, einhverntímann löngu eftir að hún varð 1 árs. Svo sagði dýralæknirinn að Karímúsa væri með þroska á við fullvaxinn kött og það voru allir undrandi á því að þetta undursamlega fagra loðna flykki sem ég hélt á væri bara lítill kettlingur enn! Kassandra var meðfærileg þegar hún fékk sprauturnar en hin ofurrólega Karítas umturnaðist þegar komið var að henni. Þá var ég látin hafa hanska og svona meðan ég hélt henni því hún snerist einsog stelpan í exorcist í höndunum á mér. Það var samt ekkert mál fyrir mig. Svo biðum við og biðum. Þetta tók aðeins lengri tíma en haldið var í fyrstu svo að þorpsbúinn ég fór að versla og keypti allt til alls. Og beið. Svo loksins voru kisurnar tilbúnar. Karítas fékk ókeypis lagningu fyrir lubbann sinn hjá dýralæknanemanum og allt. En þetta var erfið aðgerð fyrir þær og það tekur amk 2 daga fyrir þær að jafna sig. Þegar þær voru að vakna upp í gær og dragandi sig áfram á framloppunum því afturfæturnir voru ennþá máttlausir var ekki mjög fyndin sjón. Það kom mér á óvart. Ég vorkenndi þeim bara svo hrikalega, og svo veinuðu þær líka ef maður kom við þær. Og þannig var þetta í marga klukkutíma.Ég hef aldrei vitað eins ruglaða ketti (ég meina það vel) ráfandi um einsog þær væru sauðdrukknar. En enginn er verri þótt hann sé vankaður, býst ég við.
Það er bara svo hrikalegt að horfa uppá börnin sín svona! Mallinn á Kassöndru mun t.d aldrei verða samur aftur. Hver veit hvort hún leyfir mér að kjassa hann eftir þetta? Ég er svo áhyggjufull, en þetta mallakjass var eiginlega aðalsamskiptamátinn milli okkar. Karítas litla vill bara fá ást og umhyggju (sem hún fær nóg af), og ég veit ekki hvort hún getur fyrirgefið mér að hafa gert sér þetta… ég veit ekki hvort að ég get fyrirgefið mér að láta þær ganga í gegnum svona mikið erfiði og vesen! Og að eyðileggja mallakútana er náttúrulega glæpur. En hinsvegar, þá eru fræðilega séð mjög margir kostir fylgjandi þessu líka. Ég vildi t.d ekki vita af Karímúsu hegðandi sér einsog drusla útum allt, og hún er bara ekki týpan í neitt svoleiðis. Hún er svo róleg og vill bara hanga með mér eða mömmu sinni (eða langömmu) en ábyggilega ekki eignast börn. Svo er það Kassandra sem er fædd til að vera í fjörunni og undir bílum, en ekki til að ala upp kettlinga eða dekra við einhverja högna, Kassandra sem er búin að vera á pillunni í nokkur ár og það þar með orðið hættulegt fyrir hana… Ég varð að taka þessa ákvörðun. Mamma og ég vorum búnar að tala um þetta lengi lengi, en svo þegar bossavesenið hennar Karímúsu byrjaði þá ákváðum við að drífa þetta af. Og núna er það búið. Nýr kafli hjá okkur. Vonandi verður hann jafn unaðslegur og sá fyrsti!
Plís horfið á myndböndin – en farið ef þið meikið ekki mína hrikalegustu vitfirringu!!!
cuckooshoe:
“12 points from scotland
best eurovision song in years
3 minutes of pure joy”
Ég nenni ekki að skrifa um eurovision því það er bara eitt sem kemst að, og það er lagið sem ég hélt með, hinn guðdómlegi bosnesk-hersegóvínski óður um eitthvað þvottadæmi sem var svo ólýsanlega geðveikt. Jámm, þetta var eurovsion fyrir mér og þó að vinir mínir hafi ekki verið að fatta þetta strax þá lagaðist það nú eftir keppnina þegar ég fann þetta á netinu til að sýna þeim. Annars er ég ekki heima hjá mér og það er ótrúlega erfitt að blogga eða vesenast í annarra tölvum. Ég bara grátbið ykkur um að gefa þessum myndböndum séns. Sko, söngvarinn er minn nýji draumamaður (Elvir Lakovic Laka). Hann er bara svo seiðmagnaður og yndislegt krútt. Og dansinn er sá besti síðan Verka var í fyrra. Það er mitt allra mest uppáhalds lag, með besta dansinum og besta taktinum, en kynþokki söngvarans í þessu yfirvinnur Verkaaðdáunina. Finnarnir voru ekki til fyrir mér en þeir máttu samt alveg lenda í þriðja sæti. Það komst bara ekkert að nema þetta lag. Sorrí, ef þið bjuggust við því að ég hefði skoðun. Mér fannst Ísland mjög flott og bara gott mál að við náðum að vinna Svíþjóð með yfirburðum. Sigurlögin gjörsamlega gengu að þessari keppni dauðri. Þvílík viðurstyggð og lágkúra að ég hefði getað sokkið ofaní jörðina ef ekki hefði verið fyrir þessa engla frá Bosníu Herzegóvínu sem ég gæti skrifað lofræðu um í margar aldir hreinlega. Ég hafði bara séð það og heyrt einu sinni í undankeppninni og þoldi ekki leikatriðið en fílaði lagið. Það breyttist í kvöld þegar ég byrjaði að hafa sjúklegar fantasíur um þennan náunga í stað finnska villimannsins. Ég þráði að þvo framan úr honum málninguna en það meikaðist alveg og ég hélt með þessum og gæti vel hugsað mér að búa ein útí skógi með honum og systur hans. Já, ég er dáldið geðveik en ég er líka piparjónka. Og þetta lag hreinlega bjargaði eurovision.
Hérna fyrst þetta fyrst í undankeppni. Ótrúlega siðfágað og listfengt, meira en orð fá lýst. Ég er stolt af því að láta af Verkageðsýkinni og láta þetta taka við því. Dansinn og söngurinn og lagið er bara æðislegt. Það þarf að hækka í botn en ef þú ert að lesa þetta hefurðu enga afsökun og verður að horfa. Þú undirgekkst inskonar samning við mig og almættið um leið og þú komst hingað inn. Þetta er skoðanakúgun af verstu sort
Svo er það besta eftir!!! Þið verðið að horfa á þetta líka!
Ég hélt að dýr hefðu aldrei tekið þátt í eurovsion, amk vissi ég ekki af því. En þá finn ég bara þetta á netinu (ég var nýbúin að segja það upphátt og fann svo þettea næsta myndband) Hérna er hinn stórkostlegi prins með dýr með sér á sviðinu. Gjörið svo vel, dásamlegasta eurovisionatriði allra tíma því það er hæna í því:
Ég ætla aldrei að gifta mig því að hann er sennilega ekki á lausu fyrir mig.
Íslendingarnir stóðu sig ótrúlega vel og lögin sem unnu voru hórur. Fyrst viðbjóðslega karlhóran með leiðinlegasta lag í heimi næstum því og svo komu glyðrurnar hver annarri hryllilegri og Noregur! Noregur oj var efst af þessum Norðurlöndum. Hryllingur. Ég hefði látið þetta lag vinna, Svo Serbíu, Finnland og loks Ísland og Danmörku í 5.sæti því þeir eru svo góðir og yndislegir frændur og Svíar eru líka mjög góðir. Það var frábært að loksins þegar við fengum 12 stig þá var það seinasta stigið sem gefið var.
Hér er hann í viðtali og hérna sést að hann er næs og flottur en alveg 3 sinnum flottari þegar hann er að syngja. En þið þurfið ekki að eyða tíma í það frekar en þið viljið því ég ætla að lýsa því sem hann segir.
Boðskapurinn í laginu er rosalega fallegur en ruglingslegur. Og dramatískur! En ruglingslegur…
Hann vill hafa kjúklinginn sinn með sér en gat það ekki. Hann er með æði fyrir hænsnfuglum og vill sjá fleiri dýr í keppninni alveg einsog ég. Guð, ég er svo ástfangin af honum.
Og hann fílaði Verka (ég var bara að horfa á þetta seinasta myndband meðan ég skrifaði, og hann elskaði Verka frá Úkraínu líka einsog ég, en fílar annars ekki Eurovision, hann er svo ……. þetta var erótík ársins, ég mun aldrei skrifa svona grófa hluti aftur en þessi maður er bara fullkominn)
Ég verð að fara fram og vera með vinum mínum en ég bara get ekki annað en hrópað – ég elska þetta lag!!!! Og það er svo gaman að vera til sorrí.
Hérna er svo myndband af þeim í lokakeppninni – list á æðra stigi.
Bíræfinn bókavörður bregður sér af bæ.
Ég er sko bara alveg rétt ófarin í helgarfríið mitt, leiðin liggur til Reykjavíkur þarsem ég mun horfa á Ísland sigra Eurovision með glæsilegasta brag sem hugsast getur. Fólk sem veðjar á sigur okkar eftir ábendingar frá mér getur haft samband við mig eftir helgi og fengið bankanúmer til að leggja inná tíund fyrir “innherjaupplýsingarnar” ekki að ég sé að biðja um mikið, en kettirnir þurfa mat og ég þarf málningardót.
Áður en ég fer vil ég bara vísa ykkur á dásamlegustu grein sem ég held að ég hafi nokkru sinni lesið. Hún er svo undraverð og ótrúleg. Ég get ekki hætt að hugsa um Amilliu litlu og það sem þetta þýðir fyrir mannkynið. Foreldrar hennar eru líka alveg rosaleg. Ef þið haldið að þetta sé bara um eitthvað “dáldið” merkilegt þá er það mjög mikill misskilningur. Þetta er hjúds.

.
Svo er hérna þýðingin mín á völdum köflum úr frægustu ræðu Russell Means, það er aldrei hægt að fá nóg af honum, því ver og miður
Og já, meðan ég man, 15 ára strákurinn sem reis upp gegn Scientology þarf ekki að fara fyrir rétt, haha!
.
*****************************
.
Þetta er ekki búið síður en svo! Sem betur fer get ég vísað ykkur á einn ALLRA BESTA sjónvarpsþátt sem ég hef nokkru sinni séð. Hann er ekkert frægur samt. Heath Ledger leikur aðalhlutverkið. Og þetta er rosalega ævintýralegt og yndislegt, fullkomlega einsog gott sjónvarpsefni á að vera.
alveg síðan þessir þættir voru sýndir á rúv (klukkan 22 á manudagskvöldum – sko ég man það enn) hef ég þráð að sjá þá aftur. En ég verð að bíða þartil eftir helgi með að byrja almennilega að njóta þeirra að nýju.
.
Og vanmetnasti sigurvegarinn í ESC:
.
.
******************************
ég verð því miður að vísa ykkur á þessa grein líka, gat bara ekki annað því mér finnst þetta svo hrikalegt. Er skyldulesning en gerið ykkur viðbúin fyrst.





