Virkjum drauma og ímyndunarafl.

júlí 20, 2008 at 6:59 pm (Miðaldaspeki, persónulegt)

Ég var að fá enn eina sendinguna frá amazon um daginn (já ég braut öll heitin mín um að kaupa alls ekki fleiri bækur þaðan í bili) og þarsem ég er í mjög velheppnuðu lestrarátaki núna þá byrjaði ég á einni bókinni strax. Sú sem varð fyrir valinu heitir Man and his symbols eftir Carl Gustav Jung.

Ég er yfirlýstur Freudisti en hef samt verið Jungaðdáandi mun lengur. Ég lærði um þá kumpána í menntaskóla og eftir það afneitaði ég Freud um árabil, en Jung heillaði mig samfellt, enda komu kenningar hans um sálfræði, tákn og goðsagnir við sögu í mörgum bókum og fræðum sem ég kynnti mér á árunum sem fylgdu í kjölfarið. Jung var semsagt í meira uppáhaldi á meðan ég hafði bara niðursoðna grunnvitneskju um verk þeirra til að byggja á.

Ég hreifst amk mun meira af Jung en Freud, þangað til ég raunverulega kynntist þeim síðarnefnda í háskólanum. Ég á núna fullt af bókum eftir hann en þetta er hinsvegar fyrsta bókin eftir Jung sem ég kem höndum á, síðan í bókafíaskóinu mikla ´96 (löng saga – löggan blandaðist í málið en ég kom hrein einsog mjöll útúr því öllu saman, sem betur fer). Vandamálið við Jung var að ég komst aldrei inní hans fræði, hann setti þau upp á svo flókinn hátt og var eitthvað svo erfiðlega fræðilegur að ég gat ekki eytt mínum dýrmæta og umsetna tíma í hann þá. Þótt ég hafi alltaf viðhaldið aðdáuninni sem ég fann fyrir á kenningum hans þá var hann algjörlega í skugga Freuds síðan ´04. Þartil nú. Því hann er búinn að krafsa sig frammúr skugganum og er kominn vel uppað fótskör meistarans :)

Það sem gerir þessa bók svo frásagnarverðuga er að þetta var seinasta bókin hans og hún var skrifuð með það að markmiði að vera sem aðgengilegust fyrir hans æstustu almúgaaðdáendur sem höfðu hingað til ekki haft nógu stóra heila fyrir útskýringarnar (t.d ég). Hann neitaði lengi vel að láta hafa sig útí þetta en sem betur fer gerði hann það, segi ég nú bara. Þessi bók er ógeðslega skemmtileg og eins frábærlega heillandi og maður hefur alltaf ímyndað sér að Jung væri í raun. Hann þurfti bara aðhald.

Fyrsti kaflinn er um drauma og mikilvægi þeirra. Jung er næstum alltaf viðloðandi draumafræði, semog Freud, og að mínu mati kom það sem sagt var kenningum Jungs í því samhengi oftast betur út. Hann var ekki eins fastur á því að allt snerist um kynlíf (og ég skil það ósköp vel). Þótt ég sé ekki búin að klára bókina eða neitt (bara nýbyrjuð raunar) þá sannar hún fyrir mér að Jung hafi verið á réttri leið hvað drauma varðar. Allavega hvað mínar eigin draumfarir snertir þá eru kenningar Jungs mjög skemmtilegar og uppörvandi.

Það er ekkert smá skemmtilegt að lesa þessa bók, sérstaklega ef maður situr úti á stétt með kettina í eltingaleik, sólina skínandi og fuglana í sjálfsmorðshugleiðingum.

Ég mun bráðum skrifa upp eitt og annað úr bókinni, bara eitthvað smálegt…
(þetta er óþolandi ávani en mér leiðist stundum að vera alltaf pælandi í einhverju svona alein og þá er gott að geta látið aðra lesa með sér… með fyrirfram þökk…)

Hvað haldið þið að litlu skýin tvö á miðri mynd eigi að vera?

Permalink 4 Ummæli

Ég um mig og mína :)

júlí 2, 2008 at 10:11 pm (Miðaldaspeki)

Eins og hálf heimsbyggðin hefur væntanlega tekið eftir þá hef ég ekki verið uppá mitt besta blogglega séð undanfarnar vikur. Það er svosem engin sérstök ástæða fyrir því, ég held bara að það sé kominn í mig einhver skrif/pikk-leiði, sem er algjörlega nýtt ástand og eitthvað sem ég er ennþá að venjast.

Stóru fréttirnar eru þær að ég er komin í sumarfrí – bæði í bloggheimum og í raunheimum. Ég byrjaði í bloggsumarfríinu fyrst og það er líklega ástæðan fyrir því hvað allt sem ég er að reyna að koma frá mér þessa dagana hljómar ógáfulega – náttúran ætlast til þess að maður taki sér frí frá því að vera með heiminn á herðum sér, síkvartandi og kveinandi, og hún sýnir manni frammá þetta með því að gera mann voðalega döh við og við.

Alvöru sumarfríið mitt hófst síðan í fyrradag. Umm ég var búin að bíða svo lengi. Ég ætla að skella mér til Reykjavíkur í algjöra listisemdaferð á morgun. Hehe, einmitt þegar skuldir og peningaáhyggjur eru að sliga flesta samlanda mína þá á ég meiri fúlgur í bankanum en nokkru sinni fyrr, og litlar skuldir, og ég hyggst slá um mig og lifa einsog kóngur meðan ég verð fyrir sunnan. Ha-ha-ha! Sem betur fer er ég í strangri megrun og mun líklega ekki eyða öllu í dominós en við sjáum samt bara til með það… það er svo erfitt fyrir mig að standast kræsingar!

Mig hlakkar alveg óstjórnlega til að hitta fólkið fyrir sunnan og eftir margra mánaða félagslega einangrun á hjara veraldar þá verður allt gert vitlaust í borginni. Ó já :D

Kassandra og Karítas eru hér að snúast í kringum mig. Síðan þær fóru í aðgerðina hefur lífið hér á þessu heimili tekið algjörum stakkaskiptum. Það þyrfti heila skáldsögu til að lýsa því en í stuttu máli sagt þá elta þessar litlu elskur mig útum allt, liggja við hliðina á mér þegar ég er í tölvunni, hlaupa á eftir mér þegar ég fer upp að ná mér í gos, þær eru bara orðnar ótrúlegar. Og mér finnst voða gaman að hafa þær alltaf svona í rassinum.

Við biðjum annars bara að heilsa í bili…

Permalink Rita ummæli

Tískuheimurinn riðar til falls!

júní 27, 2008 at 6:29 pm (Miðaldaspeki, Uncategorized)

Það eru engar ýkjur. Sá hryllilegi atburður skeði á tískusýningu í Brasilíu á dögunum, að spikfeitt súpermódel hlassaðist niður göngubrautina og fékk alla í salnum til að grípa fyrir augun, spúa upp hádegisverðinum og þar fram eftir götunum. Fjölmiðlar í Brasilíu eru brjálaðir yfir þessum viðbjóði (rassinum aðallega) enda er Brasilía helst þekkt fyrir að framleiða grindhoraðar módelgellur sem svelta sig til dauða fyrir 25 ára aldur (Blessuð sé minning þeirra)

Þessi tékkneska kusa (Karolína Kurkóva) lætur vonandi ekki sjá sig aftur í landi hinna vannærðu fyrren hún er búin að ná af sér þessum kílóum sem hanga um allt. Brasilíubúar eru greinilega ekki tilbúnir fyrir eitthvað þannig og þykir efalaust skárra að sjá stelpur í kistum heldur en súpermódel með fiturúllur á bakinu (ef við viljum fara í stríð við Brasilíu þá skulum við hóta þeim með mínum bakrúllum, þær gefa þessum ekkert eftir hehe)

Ég meina hvert stefnir þessi heimur ef við leyfum tískuhönnuðum að finnast eða gefa í skyn að “eðlilegt” fólk geti verið fallegt?

Myndir af hlassinu koma hér á eftir, augljóslega eru þær ekki fyrir viðkvæma…

Myndin sem vakti hörðustu viðbrögðin:

Permalink 7 Ummæli

Stjarnfræðilega undarlegur atburður á bókasafninu!

júní 16, 2008 at 4:22 pm (Miðaldaspeki, power of the overlords, í stuði með guði)

Ok einsog þið vitið þá vinn ég á bókasafni sem er bæði fyrir skólann og almenning og þar er næstum því ekkert að gera þessa dagana og ég hef það bara náðugt. Ligg í leti og skipulegg (ég er rosalega góð í því reyndar).

Í dag þegar ég mætti á svæðið beið mín einn risastór bókakassi, níðþungur. Ég átti ekki von á neinni sendingu og því síður sendingu frá Danmörku en þaðan kom stóri kassinn. Utaná honum var tilkynnt vel og vandlega að bókavörðurinn ætti bréf inní kassanum.

Ég hugsaði að eina skýringin á þessu væri sú að kennararnir hefðu sjálfir pantað dönskulestrarbækur án þess að láta mig vita og þarsem ég nennti enganvegin að fara að kíkja á það núna þá setti ég kassann bara inní geymslu. Svo var alveg pínuponsulítil traffik og ég gleymdi kassanum. Þangað til rétt áðan!

Guð minn almáttugur þið getið aldrei ímyndað ykkur hvað var í kassanum!!!

Úff hvernig á ég að byrja að útskýra…

Kassaræfillinn er troðfullur af bókum eftir L.Ron Hubbard um Scientology (brosandi andlit hans starði á mig þegar ég opnaði kassann), engar skáldsögur heldur bara pjúra vísindaspeki. Það eru meiraðsegja dvd diskar þarna líka og ég veit ekki hvað! Þetta eru fínar og flottar endurútgáfur á hans verkum, og innihald kassans er semsagt gjöf frá einhverju útgáfufyrirtæki innan Scientology til mín! Eða svona næstum því, ég er með umboð fyrir bókasafnið og bréfið var því til mín. Í bréfinu stóð næstum öll sagan á bakvið sendinguna og leiðbeiningar um hvar í dewey kerfinu ætti að staðsetja þessa miklu andans veislu!

Svona í alvöru talað þá er ég að fara á taugum útaf þessu. Mér finnst þetta svo óvænt og skrítið. Kannski er Xenu sjálfur að fylgjast með mér og telur mig merkilega einsog tóma krús ég meina hver í fjáranum veit? Eins gott að það séu ekki öll bókasöfn á Íslandi að fá þetta sent. Það myndi gera lítið úr minni reynslu af upplifuninni. Vanalega er Scientology sko mjög nísk og gefur engum neitt fyrir neitt nema peninga…

Ég skrifa ábyggilega meira um þetta innan tíðar, nú verð ég að fara og halda áfram að kanna innihaldið í kassanum, ég hljóp frá því á frumstigunum til að segja ykkur frá! (sorrí öll upphrópunarmerkin en mér finnst þetta dramatískt og spennandi)

og svo þarf ég bara að ná að jafna mig, einhvernveginn…

P.S Ég vil senda rosalegt kveðjuhróp til allra ísbjarnanna á Íslandi, félagar, þið eruð flottari en við mannfólkið öll til samans. Ég bið fyrir lífi ykkar (og sigri). Kassandra heiðursísbjörn sendir ykkur rosalega ást og væmin krúttlæti…

Permalink 5 Ummæli

Brot á bannhelgi Athosar fjallsins heilaga.

maí 27, 2008 at 1:00 pm (Miðaldaspeki, í stuði með guði)

Hérna er fréttin sem ég er að fara að skrifa um

Það mega engar konur koma til fjallsins, og ekki getur það komið til þeirra. Það búa bara munkar á þessu fjalli og þeir vilja helst ekki einu sinni hitta kvenkyns dýr. Þannig hefur þetta verið í næstum þúsund ár, síðan árið 1060 er konum var bannaður aðgangur í munkaparadísinni. En um daginn breyttist það allt því þá komu 4 konur þangað í bát og voru að spóka sig á fjallinu þegar munkarnir sáu þær. Allt varð ekki vitlaust en þeir neyddust til að fyrirgefa konunum hið ægilega brot.

Sorrí, en mér finnst þetta svo ömurlegt. Það voru komin næstum því þúsund ár… og grey munkarnir ætluðu örugglega að halda alveg útúrbilaða veislu árið 2060 til að fagna því!

Það er einmitt svo einkennandi fyrir konur þessi hugsunarháttur, að þó að þær megi fara um öll fjöll og firnindi allsstaðar þá þurfa þær samt að brjótast inná helgisvæði munnkanna sem er auk þess líka andlegt heimili rétttrúnaðarkirkjunnar.

(í raun á þessi pistill meira heima á gamla blogginu en ég vil halda þessum hádegismóamönnum á tánum, grátbiðjandi um að ég skrifi meira hjá þeim helst, hehehe)

Permalink 5 Ummæli

Guðanöfn

maí 22, 2008 at 9:15 am (Miðaldaspeki)

Athyglisgáfan mín var svo opin í gær meðan ég horfði á eurovision að ég hjó eftir því að alveg fáránlega margir flytjendur (hljómsveitir og einstaklingar) kölluðu sig goðanöfnum eða einhverju goðatengdu.

Það er ekki ávísun á neitt gott samkvæmt gúrúinu mínum honum Matthew Delooze… í hvert sinn sem við hlustum á og fögnum yfir því að t.d “Isis” sé að syngja þá sogar það orku frá okkur og yfir í fjórðu víddina!

Ekki vil ég að við gefum orkuna óafvitandi, þessvegna varð þessi pistill til.

Ég fór á netið og tjekkaði á nöfnum þeirra allra, og tók þá eftir enn fleirum sem eiga nöfn er falla í þennan flokk. Þessi eru mest áberandi en svo voru nokkur önnur nöfn þarna líka sem hefði mögulega verið hægt að troða með – en það hefði samt verið langsótt. Ég tjekkaði ekkert á þeim flytjendunum sem eiga eftir að syngja en mun spá í þeim á morgun, kannski var þessu bara raðað eitthvað asnalega og allt þetta guðdómlega var í gær, kannski, kannski….

.

Ísrael – Boaz
Söngvarinn heitir Bóaz og það er ekkert óeðlilegt enda hétu Ísraelar þessu nafni líka í gamla daga, en ef við viljum hafa áhyggjur af þessu þá verðum við að horfa framhjá því og líta til alþjóðlegra frímúrara. Þá kemur nefninlega margt í ljós. Boaz er nafnið á annarri súlunni sem tengist hofi Salomons. Hof Salomons skiptir nánast öllu hjá frímúrurum og þeir læra stöðugt meira um dulspekilegfræði í sambandi við hönnun, byggingar, iðnað og fleira, eftir því sem þeir vígjast inní æðri gráður. Súlurnar eru tvær og skipta gríðarlegu máli í allri táknfræði frímúrara, þeir representa þær einhvernvegin í öllum sínum félagshúsnæðum, við innganga og annarsstaðar, en fólk er kannski ekkert mikið að spá í því. Þær heita Boaz og Jachin og það er sagt frá þeim í Biblíunni.

.

San Marino – Miodio
Mig grunaði að þetta þýddi eitthvað spúkí og tjekkaði með því að leita á google og jú viti menn, grunur minn var á rökum reistur. Það gerist sko ekki rosalegra, hljómsveitin kallar sig “guð minn” – hehe :)

Hvað þýðir Miodio? Smella hér

.

.

Belgía – Ishtar
Hljómsveitin skírði sig eftir babýlónsku ástargyðjunni og væntanlega henni til dýrðar? Nú fer þetta sko fyrst að verða eitthvað hardkor. Ishtar er ein af frægustu gyðjunum á þessu ævaforna menningarsvæði. Hún var mjög tengd við kynlíf (og ólifnað), og hennar helgasta borg var meiraðsegja kölluð “bær hinna heilögu gleðikvenda”. Það er hægt að finna ýmsar samsvaranir milli hennar og Freyju í goðsögnum og helgikvæðum, það er meiraðsegja ekkert erfitt. En kannski er það svosem ekkert skrítið, þessi goð eru meira og minna öll eins!

Þið getið lesið ykkur nánar til um hana Ishtar með því að:

Smella hér

eða þá

Smella hér

.

Azerbaijan – Elnur & Samir
Í þessu tilfelli skiptir það ekki svo miklu máli hvað söngvararnir heita, heldur snýst þetta meira um hvað þeir gerðu á sviðinu. Fyrst kom annar þeirra inn í englabúningi með risavængi, svo sá maður hinn náungann og hann var greinilega að leika djöfulinn, sat svartklæddur í hásæti með iðandi djöflakvendi í kringum sig og á hápunkti lagsins hellti hann úr bikar yfir eina gelluna og mér sýndist það eiga að vera blóð, allavega ákvað ég að það ætti að vera blóð. Þetta var sjúkt atriði og geðveikt flott. Algjört angels and demons og annað eins drama hefur bara aldrei sést í eurovision fyrr né síðar!
Svo þegar ég var að gá að nöfnunum þá tók ég eftir að annar söngvarinn heitir El-nur. El þýðir Guð. Veit ekki með hitt nafnið hvort að það hefur líka einhverjar skýrskotanir í æðri heima en nennti bara ekki að gá að því að sinni (ég er ekki fullkomlega snarbrjáluð enn!)

.

Norge – Maria
Umm, María guðsmóðir, María Magdalena… möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að nafninu María. En ég tel gott að hafa það með í þessari upptalningu, og ekki veitir af innan um öll þessi siðspilltu goð Babylóníu og Egyptalands! Heilög guðsmóðir veri með oss, ég segi það satt.

.

Pólland – Isis Gee
Söngkonan með brúnkukremið og hrukkóttu húðina kallar sig eftir egypsku ofurgyðjunni sem allir þekkja. Ég er ekki alveg að nenna að skrifa mikið meira en þið skiljið alvöru málsins.

Lesið um hina einu sönnu Isis

Meira um Isis

.

.

Rúmenía – Nico & Vlad
Ég hafði þetta nú bara með vegna þess að söngvarinn heitir sama nafni og Dracula greifi, nefninlega Vlad. Vlad greifi fékk viðurnefnið stjaksetjarinn (the impaler) vegna þess hvernig hann pyntaði óvini sína.

*********************************************

Ég er svo þakklát fyrir það að einhverjir nenni að pæla í eurovision með mér að ég ætla að vísa ykkur á vefsíðu sem fjallar um pyntingaraðferðir miðalda en vara ykkur alveg rosalega við fyrst. Ég er alveg hrikalega mikil áhugamanneskja um allt miðaldatengt og ég get auðveldlega lesið um algjöran viðbjóð, en þessar nákvæmu lýsingar voru bara einum of fyrir mig. Ég las um 3-4 aðferðir og gafst svo upp og hef ekki haft sama áhuga á þessum málum síðan. Þessi síða eyðilagði hreinlega allt! En sadistar geta án efa notið þessa MJÖG, MJÖG VEL.

Miðaldapyntingar: Smella hér

.

Permalink 6 Ummæli