Ísbjarnarblús #4

júní 6, 2008 at 3:07 pm (Bestiary, Málfrelsi)

Ísbjarnarmálið er farið að vekja athygli erlendis. Það er meiraðsegja komið í fréttabiblíuna mína, the daily mail. Fólkið sem segir skoðanir sínar á fréttinni sem birtist þar hittir naglann ansi oft á höfuðið:

“Enn einn hálfviti með byssu, skjóta fyrst – hugsa…. aldrei!
segir Cristopher Chapman frá Frakklandi

Marion frá Írlandi (án efa frænka okkar) kemur sterk inn með þessari hugleiðingu:
“Kemur ekki á óvart ef maður spáir í orðsporinu sem fer af íslandi í dýraverndunar og -velferðarmálum…”

Hinn breski Alan lætur falla gríðarlega, gríðarlega þung orð í garð lögregunnar á Íslandi:
“Það er sorglegt að hugleiða en svo virðist sem íslenska lögreglan sé jafn getulaus og okkar lögga.” (komandi frá breta eru þessi orð ekkert annað en móðgandi kjaftshögg – en ég held með Alan hér)

“Fögur skepna, drepin fyrir ekkert. Þeir þurftu ekki að drepa hann.”
Réttmæt lokaorð frá Roy í London.

Ég vil einnig mæla með þessari hérna grein eftir læknirinn Birgir Guðjónsson:

Hvítabjarnardrápið

Æsispennandi atriði úr greininni eru m.a:

Fyrsta grein mín birtist 1974 eftir dráp bjarnar á Hornströndum og benti ég á þekkt önnur úrræði og aflaði mikilla upplýsinga hvernig mætti fanga slík dýr og hvatti til þess að það yrði sportið fremur en drápið. Samkvæmt upplýsingum á þeim tíma höfðu þrjú dýr verið felld áratuginn á undan. Viðbrögð við grein minni urðu engin. Hvorki frá ráðuneyti, dýralæknum, náttúruverndarsamtökum, fréttamiðlum né sportmönnum.

Aftur skrifaði ég 1988 eftir dráp bjarnar og vitnaði þá til annars dráps í millitíðinni. Boðskapur minn var svipaður og „viðbragðsleysi” yfirvalda eins. Árið 1993 skrifaði ég aftur eftir að dýr var drepið á mjög frumlegan hátt sem vakti alþjóðaathygli. „Aftaka” þess olli nokkrum viðbrögðum en varð þó til þess að ráðherra bannaði að dýr væru drepin með hengingu eins og Hussein.

Permalink 4 Ummæli

Áríðandi tilkynning til allra

maí 25, 2008 at 8:04 pm (Málfrelsi)

Þeir sem ætla að lesa þetta blogg verða að vera ógeðslega til í að meðtaka allskyns hluti sem mér finnst skemmtilegir því það er hrikalega gaman að því sem lífið hefur uppá að bjóða. Næstnýjasta bloggfærslan mín sannar allt um það. Ég veit að þetta mun verða sem ný trúarbrögð fyrir þeim sem er að lesa. Enda er ég algjörlega hætt að blogga á blog.is nema sem hinn harðsvíraðasti og einfeldningslegasti trúarofstækismaður. Nei án gríns, það verður bara trúarblogg framvegis og alveg ótrúleg gelgjulæti lon og don hér ;)

En þetta vildi Jenný Anna (að ég héldi mig líka við blog.is) og ég ætla svo sannarlega að gera það, ha-ha-haa!

***************************************************

En hérna mun ég geta baktalað allt og alla og sagt allskyns ljótt um þá sem eiga það skilið án þess að eiga á hættu að lenda á forsíðu mbl.is, það var algjört hell sem eyðilagði allt.

Permalink 4 Ummæli

Ofsóknir gegn kristnu fólki

maí 21, 2008 at 3:55 pm (Málfrelsi, í stuði með guði)

Ég býð ykkur að fljúga yfir til hennar Lindu og lesa um það sem er að gerast á Indlandi. Því miður er þetta svo langt í frá að vera einsdæmi.

Hatrið og heiftin fer allsstaðar vaxandi, einsog hefur verið spáð….

Greinin hennar Lindu – athugið, ef þið viljið hjálpa heiminum og okkur öllum þá læturðu þetta ekki framhjá þér fara!

***********************************************

Svo voru líka nýnasistar að berja femínista í Svíþjóð um daginn, það er aldeilis fjör :/

Permalink 5 Ummæli

Í tilefni af vinsældum ritskoðunarviðhorfa á fróni

maí 21, 2008 at 1:17 pm (Málfrelsi) ()

Ég var að rekast á frétt áðan um Scientology og mótmæli gegn þeim sem áttu sér stað á Englandi nýlega. Hópur sem kallar sig Anonymous hefur verið mjög duglegur að berjast gegn S og skipuleggur allskonar aðgerðir, bæði á netinu og í raunheimum.

Einn fimmtán ára drengur sem tók þátt í mótmælunum og bar skilti sem á stóð að S væri költ fékk aðvörun frá löggukonu og ég á svo gott sem ENGIN ORÐ yfir það sem gerðist næst! Honum var sýndur þessi miði

og núna er hann kannski að fara fyrir rétt!!!

fréttin tekin af religionnewsblog:

Within five minutes of arriving, the teenager was approached by a female police officer and told he was not allowed to use the word “cult” to describe Scientology, and that the Inspector in charge would make a decision. Soon afterwards officers again approached, read Section 5 of the Public Order Act 1986 and handed him this notice.

The Act makes it an offence to display “any writing, sign or other visible representation which is threatening, abusive or insulting, within the hearing or sight of a person likely to be caused harassment, alarm or distress thereby”.

In response, the teenager quoted back a High Court judgement from 1984. Justice Latey repeatedly said in a family division case that Scientology was a “cult” – one that was “immoral”, “socially obnoxious”, “corrupt”, “sinister” and “dangerous”.

Mér finnst þessi strákur æðislegur og auðvitað styðja allar siðferðislega meðvitaðar manneskjur þessar aðgerðir mótmælendanna! Hvað annað?

Ég gæti varla sleppt því undir neinum kringumstæðum að móðga þessa költista og þeirra viðbjóðslega költ, ekki frekar en Dokksi getur sleppt því að móðga ýmis skipulögð trúarbrögð og fylgjendur þeirra. Live and let live segi ég, svo lengi sem enginn er beittur ofbeldi né gerð tildrög að því að meiða einhvern. Ég myndi ráðast að þeim fyrir að tilheyra stofnun sem hefur raunverulega drepið fólk fyrir að reyna að hætta, og sem hefur eyðilagt óteljandi fjölskyldur og gert margt margt fleira illt. Peningahliðin og hvernig fólk er gert gjaldþrota fyrir svokallað “nám” er svo önnur hlið á hryllingnum sem ég nenni ekki einu sinni að fara útí. Það kemur mér ekkert við hverju þau trúa (þó að ég ætti að mega hlæja að því eins mikið og mig lystir og skrifa um það líka, jafnvel á stór spjöld) en það er allt annað að gagnrýna þau fyrir ofbeldi, kúgun og annan slíkan viðbjóð – EINHVERJIR VERÐA AÐ STANDA UPP OG VEIFA FINGRINUM FRAMAN Í ILLSKUNA!!!

Ég veit um fólk sem lífið hefur hreinlega verið eyðilagt hjá af Scientology, það er fólk sem hefur eytt bestu áratugum ævi sinnar í að vinna hroðalega erfiðisvinnu fyrir költinn, án þess að fá laun, og þegar þau hafa reynt að hætta í honum (margoft) hefur þeim verið hótað öllu illu og fjölskyldum þeirra líka :(

Þetta er svo sorglegt og ógeðslegt…. og það eina sem maður getur gert er að kalla þetta “hættulegan költ” – er það nú orðið glæpsamlegt líka?

Only in the UK……..

But coming to Iceland real soon….

Eina ástæðan fyrir því að liðið móðgast er vegna þess að þetta er satt.

Ísland er ekki orðið jafn slæmt í ritskoðun, kúgun og bilun einsog Bretland, en við nálgumst það óðfluga, sérstaklega ef maður fer að spá í því sem hefur verið að gerast á blog.is og hvernig margir virðast hreinlega bara sáttir við að lokað sé á blogg eða aðgangur fólks skertur vegna skoðana. Ég get ekki fengið heilann minn til að meika sense úr þessu. Þetta fólk sem segir að svona lagað sé nauðsynlegt eða af hinu góða er á móti málfrelsi og tjáningarfrelsi, það er það eina sem hægt er að segja um þau. Því miður. Ég ber enga virðingu fyrir þeim né þeirra skoðunum, hversu lengi ætli það verði í lagi fyrir mig að segja það?

Þessi miði er svo ógnvekjandi


En allavega, 15 ára strákurinn er algjör hetja :)

Hann mun sigra þetta, ég hef ekki trú á öðru.

Permalink 8 Ummæli