Söguskoðun

júlí 16, 2008 at 4:24 pm (Diabolique, power of the overlords)

Ég fann þessa mynd hjá snillingnum Celtic Rebel:

Hvað finnst ykkur? Verið óhrædd við að tjá tilfinningar, sama hversu andstyggilegar þær kunna að vera, það er ábyggilega réttmæt skoðun sko…

Permalink 1 ummæli

Smán og viðurstyggð

júlí 2, 2008 at 9:12 pm (Diabolique, power of the overlords)

Ég ætla að segja mig úr lögum við Ísland ef Paul Ramses verður sendur úr landi!!!

Það er hryllilegur smánarblettur á okkar samtíma að hann sitji nú í fangaklefa einsog hver annar ótíndur glæpamaður. Ég er svo reið að ég gæti hreinlega snappað á hverri stundu….

Þið Reykvíkingar sem vettlingi getið valdið, safnist saman fyrir utan löggustöðina í nótt, mætið með heykvíslar og kyndla þessvegna, bara hvað sem er, komið í veg fyrir að við fremjum ófyrirgefanlegan glæp :(

—————————————-

bætt við 3.júlí: Flugvélin með Paul innanborðs er farin úr landi. Ég mun aldrei fyrirgefa þetta, aldrei – og allir sem bera einhverja smá ábyrgð á þessum hryllingi eiga ekkert minna skilið en eilífðarvist í Gitmo eða hroðalegustu pyntingarbúðum kínverja! Að þessu hafi verið leyft að gerast er hroðalegur blettur á þjóðarsálinni :(

Heiðursmennin sem hlupu útá flugbrautina í morgun eru hetjur. Ég trúi því varla að það hafi náðst 30 þúsund manns á tónleika fyrir náttúruna en bara 2 mættu til að mótmæla því að Ísland standi fyrir mesta viðbjóði sögu sinnar??? Sorg :(

Permalink Rita ummæli

Þvílíkur brandari (ófyndinn í meiralagi)

júní 29, 2008 at 10:21 am (Diabolique, power of the overlords)

Permalink 2 Ummæli

Óvænt

júní 13, 2008 at 2:22 pm (Diabolique)

Vanalega eru grænmetisætur frekar pirrandi en ekki þessi:

Ísbjörninn var grænmetisæta

Það gerir morðið bara ennþá sorglegra :(

R.I.P.

************************************************

Hérna er annar ísbjörn

Permalink 3 Ummæli

Dagurinn í dag

júní 3, 2008 at 6:12 pm (Diabolique)

Er búinn að vera fáránlegur. Það fyrsta sem ég hugsaði var: “Ó vá, ísbjörn, hann verður örugglega drepinn, en hey, kannski ekki, best að bíða og vona…” svo var hann auðvitað drepinn og eftir það breyttist dagurinn minn í svartnætti sem sér ei fyrir endann á (sorginni). Allan vinnudaginn var ég að hugsa um þetta og brosti lítið sem ekkert, svo kom ég heim og fór útí búð, og byrjaði strax að grenja á leiðinni heim aftur. En ég reyndi allt til að halda aftur af því. Mamma var líka miður sín og allir hennar vinir og starfsfélagar. Henni hafði meiraðsegja dreymt fyrir þessu (einhverjum leiðindum)

Ég er ekki bara að syrgja ísbjörninn heldur einnig það hve samvitund íslands er orðin stórlega skemmd. Það er bæði siðferðislega rangt og ólöglegt að hegða sér svona einsog gert var, bara í alvöru talað. Það er ekkert víst að við komumst flekklaust frá þessu á alþjóðavettvangi…. (sem er gott, þá fær mannkynið hrós frá mér ef það böstar okkur fyrir þennan viðbjóð)

Það ber að kæra ísland, því þetta dráp var ólöglegt á einhvern hátt, ég bara veit það.

og núnar er ég hætt að geta skrifað ísland með stórum staf! ég skammast mín svo hrikalega!

og ég er mikið að spá í að leggjast í hýði :(

það sem heldur mér gangandi í sambandi við þetta er sú staðreynd að
íslendingar hafa upp til hópa stigið fram í netheimum í dag og sýnt sitt rétta og sanna eðli, sem er það að vera miklir dýravinir sem skynja náið samhengi náttúrunnar og andans. Íslenska þjóðin er stórkostleg að mestu, skítseiðin eru bara mest áberandi og frekust. Og vilja aldrei hjálpa né spá í muninum á milli þess rétta og ranga.

Þrátt fyrir allt þetta góða sem við búum við þá eru dýraverndarlög og hefðir á Íslandi því miður í algjörum ólestri, næstum jafn miklum ólestri og þau ráð og reglugerðir sem miða að því að koma börnum til hjálpar. Dýr og börn (og gamlt fólk sem er langflottast), þau eru það eina sem máli skiptir en fullvalda ríkið ísland skilur það ekki, og mun úr þessu líklega aldrei ná að skilja að það sé til eitthvað merkilegra en kapítalismi, peningar og markaðir. Þarmeð verða örlög okkar innsigluð. Við hjálpum ekkert endilega þó að við getum það, sem er einmitt djöfullegasta syndin sem fyrirfinnst og það eina sem mun koma armageddon af stað, ég get lofað ykkur því. Það verða ekki hommar né endaþarmsmök heldur MISKUNNARLEYSI!

********************************************************************

Næst þegar ég blogga þá verð ég að segja kisufréttir, það er sko mikið að gerast hjá Kassí og Karí þessa dagana. Mikið drama, ósætti og kelirí milli tegunda. En jámm, ég ætla að leggjast í smá hýði og reyna að hætta að hugsa svona mikið um björninn, best að reyna að gleyma bara…

Permalink 14 Ummæli