Um mig

Fyrirsögnin á þessari síðu er uppáhalds Jesú kvótið mitt en ekki eitthvað sem ég er að segja að ég vilji. En það er ekkert eins kúl og miskunnsemi (gagnvart öllu) og Jesú vill hana og það er ekki einsog það sé verið að biðja um mikið…

Ég er háskólamenntað fyrirbæri sem hefur gaman af skrítnum gömlum bókum og sjónvarpi, en fyrst og fremst er ég kattaeigandi.

Aldur: 28 ára

Kyn: Kona

Trúarbrögð: Alfaðir, Jesú, Biblían og Hávamál.

Pólitík: Varla nokkur, en ég telst kannski helst til vinstri og græn, er reyndar íhaldssöm þegar mér hentar. Kannski má segja að ég sé á móti pólitík, líklega já.

Baráttumál: Ég er á móti öllum veiðum, sérstaklega hvalveiðum og rjúpnaveiðum (og lang, lang minnst á móti fiskveiðum) Ég held að það hafi alltaf slæmar afleiðingar að veiða dýr eða að beita annarskonar ofbeldi, á öll svið samfélagsins. Einu skiptin sem það er í lagi er þegar það er nauðsynlegt.

************************************************

Ég er nýlega orðin vitsmunavera og umgengst ægilega mikið af vitsmunagúrúum utan raunheima.

Reyni að vera alltaf ógeðslega róleg (spáið í því hvað það tekst sjaldan)

1 ummæli

  1. Byndís B sagði,

    Flott síða.

    Kær kveðja, Bryndís

Rita ummæli