Hvar er mannúðin?

júlí 3, 2008 at 12:19 pm (persónulegt)

Ég get ekki alveg á mér heilli tekið útaf meðferðinni á flóttamanninum Paul Ramses, það semsagt skiptast á nokkurskonar sálræn skin og skúrir, mig hlakkar svo til að fara í fríið, en tilhlökkunin súrnar alltaf þegar ég hugsa um hvað ég bý á viðurstyggilega ógeðslegu landi þarsem stjórnvöldin stjórna samkvæmt hreinni illsku. Mér finnst að við megum passa okkur á því að gleyma þessu ekki bara eftir 2 daga, við þurfum að gera allt til þess að fá manninn aftur hingað svo hann geti verið hér með konu sinni og nýfæddu barni. Ég vil persónulega að hann búi hér sem lengst því okkur vantar fleiri einstaklinga sem geta gert eitthvað gagn.

Margir margir eru búnir að blogga um þetta á moggablogginu í morgun, ég ætla að vísa á þau blogg, Jenný Anna var náttúrulega fyrst að taka til hendinni í gær, vitandi að það væri lítill tími til stefnu og lítið hægt að gera… já, við þurfum bara að finna út hvað þarf að gerast til þess að Paul Ramses geti komið hingað aftur! Lesið bloggin um þetta mál, sköpum hysteríu, það er það eina sem virkar.

Jenný Anna

Guðríður Haralds

Ingunn Guðnadóttir

Birgitta Jóns

Óskar Helgi Helgason

Sigurður Þór Guðjónsson

Það er fáránlegt að hugsa til þess ef það finnast svo margir sem 10 einstaklingar á þessu guðsvolaða skeri sem eru ekki grátandi og miður sín yfir þessu! Ég hélt í alvörunni að við mætum fólk meira en t.d bjarndýr, en svo virðist ekki vera. Fjölmiðlar eru líka involveraðir í að þagga þetta mál niður, það kemur ekki frétt eftir frétt eftir frétt um þetta einsog með bjarndýrin og hundana. Ó nei. Djöfulsins viðbjóður, það er ekkert annað hægt að segja :(

4 Ummæli

  1. Linda sagði,

    Sammála Anna mín. Ekki gleyma að skrifa undir listann sem er í gangi, hlekkur á minni síðu ef þú ert ekki þegar búin.

    knús (hjarta)

  2. Anna Karen sagði,

    Hæ hæ jú ég er búin að skrifa undir, ég mætti meiraðsegja smá í mótmælin nýkomin úr flugi, ég slaka ekki á útaf þessu og það eru bara allir miður sín.

  3. alva ævarsdóttir sagði,

    Þetta er ótrúlegt. Hvernig er hægt að gera svona og vera svo að undirbúa móttökur flóttamanna á sama tíma…óskiljanlegt, það á að senda þennan mann út í opinn dauðann…þessi Haukur er óhugnalega vélrænn, sástu hann í Kastljósinu?

  4. Anna Karen sagði,

    nei ég sá það ekki, tölvan sem ég er í vildi ekki spila kastljósið og ég er gestkomandi – fylgist samt með þessu máli og bíð, ég bara trúi ekki því sem er að gerast :(

Rita ummæli