Stóri dagurinn!!!

Í dag er mikill fagnaðardagur og ég læt hérmeð boð út ganga til allra sem heyra að í dag heldur Kassandra ísbjarnarmallakerling uppá 4ra ára afmælið sitt. Hún ætlar ekki að halda stóra veislu sjálf en hún þakkar náðarsamlegast fyrir ræðuhöldin og allt fjörið sem var skipulagt í tilefni dagsins hennar.
Annars erum við fjölskyldan að mestu bara með hugann við ísbjörn #2. Í gær kíkti ég t.d á yfirlit um heitar umræður á moggablogginu og það voru ábyggilega 80% þeirra helgaðar stóra bangsa! Ég var svo glöð yfir kærleikanum og dýraástinni sem þarna var sýnd að ég tárfelldi næstum en ég nennti bara að lesa sumt (hef of mikið að gera við að föndra og lesa um dianetics og það allt…), en svo var ég að fylgjast með fréttunum af því hvernig gengi í æðarvarpinu. Það er sorglegt að hugsa um lífsbaráttuna þar en svona er þetta bara, stór rándýr taka sinn toll og ég hef þegar tekið það mikinn (í lömbum, fiskum og kjúklingum sérstaklega) að ég ætla ekki að segja múkk til að gagnrýna bangsann. Mamma hlustaði á allar fréttir í gær og morgun og sagði mér að allt gengi vel so far, t.d að framganga löggunnar væri fagleg og til fyrirmyndar. Hjartað mitt tárfelldi því íslendingar eru flottastir þegar þeir eru að gera það rétta. Við getum það sko! Fólkið sem bloggaði eru líka dásamlegri en orð fá lýst. Ég get bara ekki sagt meira í bili, tilfinningarnar eru að svella upp í barmi mínum
Svo vil ég þakka Björgúlfi dúllurassi fyrir að leggja til peningana, þetta er það sem málið snýst um. Næst bjargar hann Kattholti og þá verð ég sátt
En oj hvað ég varð reið þegar ég heyrði um fábjánann sem virti ekki flugbannið, það á að nafngreina svona dólga svo að götudómsstólinn geti tekið á þeim…. þeir þurfa að sjá hvað gerist fyrir þá sem virða ekki ísbjörninn!
Ég er enn að hugsa um hinn ísbjörninn, þann sem lést. Hann var svo hrikalega góður og kærleiksríkur, alveg einsog þessi virðist vera.
Vonandi gengur vel að flytja hann, það á ekki að vera eins mikið mál og látið var í veðri vaka þegar fíaskóið átti sér stað og það verða fagmenn þarna til að fylgjast með og sjá um þetta. Ef það heppnast ekki þá var amk viljinn fyrir hendi til að gera hið rétta.

Linda sagði,
júní 17, 2008 kl. 6:01 pm
Til hamingj með daginn Kassí mín, mikið erum við öll lánsöm að halda upp á hann
. Ég sé að þú Anna segir satt þegar þú talar um að þú hafir verið að blogga heilmikið, búin að lesa um Ísbjörnin, mjög svalt, nema með flugdólginn, mjög svo vitlaus sá gaur, skil með æðavarpið, en ég er rándýr líka (dæs) dæmi því ekki, og ekki má gleyma svíninu ógurlega sem er ógurlega mikið krút í stígvelum, vúhú.
Gleðilega Þjóðhátíð.
Sigurður Þór Guðjónssdon sagði,
júní 17, 2008 kl. 7:34 pm
Bangsi nr. 2 er dáinn – á afmælisdegi Kassöndru! Mér finnst fréttin um að hann hafi tekið á rás til sjávar einkennileg. Afhverju gerði hann það? Og hvað var svona voðalegt við það? Til hamingju með Kassöndru. Mali verður eins árs eftir 9 daga.
halkatla sagði,
júní 17, 2008 kl. 9:34 pm
já greyið bangsinn! Maður veit í raun ekkert hvað var að gerast á bakvið tjöldin og hvað fór úrskeiðis
ég trúi ekki opinberu útskýringunni.
En það er rosa merkilegt að ísbirnir séu að spóka sig svona mikið hér á sumrin… og hvað er málið með 17.júní? Jarðskjálftar, ísbirnir, Kassandra, hvað verður eiginlega næst?
halkatla sagði,
júní 17, 2008 kl. 9:34 pm
báðir voru drepnir á þriðjudegi.
alva ævarsdóttir sagði,
júní 17, 2008 kl. 11:03 pm
Til hamingju með fjögurra ára afmælið Kassandra!!