Stjarnfræðilega undarlegur atburður á bókasafninu!
Ok einsog þið vitið þá vinn ég á bókasafni sem er bæði fyrir skólann og almenning og þar er næstum því ekkert að gera þessa dagana og ég hef það bara náðugt. Ligg í leti og skipulegg (ég er rosalega góð í því reyndar).
Í dag þegar ég mætti á svæðið beið mín einn risastór bókakassi, níðþungur. Ég átti ekki von á neinni sendingu og því síður sendingu frá Danmörku en þaðan kom stóri kassinn. Utaná honum var tilkynnt vel og vandlega að bókavörðurinn ætti bréf inní kassanum.
Ég hugsaði að eina skýringin á þessu væri sú að kennararnir hefðu sjálfir pantað dönskulestrarbækur án þess að láta mig vita og þarsem ég nennti enganvegin að fara að kíkja á það núna þá setti ég kassann bara inní geymslu. Svo var alveg pínuponsulítil traffik og ég gleymdi kassanum. Þangað til rétt áðan!
Guð minn almáttugur þið getið aldrei ímyndað ykkur hvað var í kassanum!!!
Úff hvernig á ég að byrja að útskýra…
Kassaræfillinn er troðfullur af bókum eftir L.Ron Hubbard um Scientology (brosandi andlit hans starði á mig þegar ég opnaði kassann), engar skáldsögur heldur bara pjúra vísindaspeki. Það eru meiraðsegja dvd diskar þarna líka og ég veit ekki hvað! Þetta eru fínar og flottar endurútgáfur á hans verkum, og innihald kassans er semsagt gjöf frá einhverju útgáfufyrirtæki innan Scientology til mín! Eða svona næstum því, ég er með umboð fyrir bókasafnið og bréfið var því til mín. Í bréfinu stóð næstum öll sagan á bakvið sendinguna og leiðbeiningar um hvar í dewey kerfinu ætti að staðsetja þessa miklu andans veislu!
Svona í alvöru talað þá er ég að fara á taugum útaf þessu. Mér finnst þetta svo óvænt og skrítið. Kannski er Xenu sjálfur að fylgjast með mér og telur mig merkilega einsog tóma krús ég meina hver í fjáranum veit? Eins gott að það séu ekki öll bókasöfn á Íslandi að fá þetta sent. Það myndi gera lítið úr minni reynslu af upplifuninni. Vanalega er Scientology sko mjög nísk og gefur engum neitt fyrir neitt nema peninga…
Ég skrifa ábyggilega meira um þetta innan tíðar, nú verð ég að fara og halda áfram að kanna innihaldið í kassanum, ég hljóp frá því á frumstigunum til að segja ykkur frá! (sorrí öll upphrópunarmerkin en mér finnst þetta dramatískt og spennandi)
og svo þarf ég bara að ná að jafna mig, einhvernveginn…

P.S Ég vil senda rosalegt kveðjuhróp til allra ísbjarnanna á Íslandi, félagar, þið eruð flottari en við mannfólkið öll til samans. Ég bið fyrir lífi ykkar (og sigri). Kassandra heiðursísbjörn sendir ykkur rosalega ást og væmin krúttlæti…
DoctorE sagði,
júní 17, 2008 kl. 4:19 pm
Hvað sagði Hubbard; Léttasta leiðin til þess að eignast fullt af peningum er að stofna ný trúarbrögð.
Áfram ísbirnir!!! og náttlega Anna líka!
halkatla sagði,
júní 18, 2008 kl. 12:02 am
og þú segir að geimgaldrakarlar séu ekki til!
en ég skal ekki segja Xenu að þú hafir gert grín að félögum hans
L. Ron kom mér merkilega á óvart með þessari sendingu, hann er eini költleiðtoginn sem hefur sýnt mér svona persónulegt “touch”
Ég mun þarafleiðandi minnka baktalið um scientology til muna!
DoctorE sagði,
júní 18, 2008 kl. 2:24 pm
Sko ég fer nú að stofna trúfrjálsbrögð eða eitthvað, just 4 the money
Guðsteinn Haukur sagði,
júní 18, 2008 kl. 7:01 pm
Gaaaaaaaarg … vísindakirkjubækur? Jæja, kannski ferðu að hoppa í sófanum eftir lesturinn!
halkatla sagði,
júní 19, 2008 kl. 12:12 pm
ég mun hoppa og skoppa en ekki af sömu ástæðum og tóm krús