Vítavert gáleysi ráðamanna og hvítu dýrin
Það eru næstum allir miður sín útaf þessu með bangsann! Þetta er líka bara svo ótrúlegt klúður hjá stjórnvöldum hér, þau eru ekki undirbúin fyrir eitt né neitt, þykjast t.d ekki eiga til þessi nauðsynlegu deyfilyf og eru bara góð í að koma með afsakanir. Vitsmunaverur eru miður sín yfir þessu!
Svona fólk einsog það sem situr á valdastólum okkar lands stofnar saklausum borgurum í voða með heimsku sinni og þau líta það hinum jákvæðustu augum að dýr séu drepin við hvert tilgangslausa tækifærið sem gefst. Amk gera þau ekkert í því að blóðþyrsta fólkið fái að vaða uppi og skjóti á hvað sem því líkar. Það þykir bara fínt að vera heilalaus hálfviti með byssu á hinu góða Íslandi. Össur og Imba fá reyndar smá hrós fyrir sína hvalavernd, en flestir félagar þeirra hugsa því miður ekkert útí það jákvæða og góða sem fylgir því að breyta rétt. Það er eina leiðin til að bjarga landinu: miskunnsemi!
Í stað þess að flytja björninn heim einsog vel hefði verið hægt að gera (amk reyna) þá koma þau með sömu væluræðuna enn og aftur: “við kunnum ekki, við getum ekki, norðmenn drepa þessi dýr, bla bla bla….” ógeðslegt helvítis kjaftæði sem ég höndla örugglega ekki mikið lengur. Þetta er meira og minna bara lygabull! Norðmenn hefðu ekki drepið þennan björn, við eigum deyfilyfin bara víst og hérna er nægileg þekking á allskyns björgunarafrekum til að koma þessum hrakta ferðalang aftur heim! Mig langar ekki að búa í svona heimskulegu samfélagi. Þeir sem ráða hafa flestir engan skilning á því sem snertir hið mannlega (það eina sem skiptir máli) og almennt þá ræður heimskan för, – umræðan á meðal landsmanna hefur verið eftir því síðustu áratugi. Við erum löngu komin með uppí kok yfir þessu og höngum á okkar síðustu taug eins lengi og við höldum voninni, en hún snappar á endanum. Ok við erum rík, eigum allt og fáum allt. En við erum andlega dauð þjóð.
Viðbætur:
Meiraðsegja lítið þjóð á pínkulítilli eyju sem glímir við borgarastyrjöld og ómælda erfiðleika getur gert meira og betra fyrir sín dýr heldur en við: Fílar í kúlnahríð á Sri Lanka
Þórunn Sveinbjarnardóttir er núna að reyna að fegra sinn hlut í þessu öllu saman, þannig að ég segi bara: “greyið hún að hafa strax í upphafi logið þessu með deyfilyfið”. Enginn mun trúa henni framar. Fólk skilur ekki hversvegna það var ekki staðið fagmannlega að verki. Afhverju varð að sýna vítavert gáleysi og stofna mönnum og dýrum í óþarfa voða? Svo var öllu dembt í fréttirnar strax, og því haldið fram að við vissum ekkert og gætum ekkert, osfrv osfrv. Endalaust klúður. Og afhverju var svo allur þessi aumingjaskapur? Afhverju ekki bara að segja: “við reddum þessu” og verða hetjur í kjölfarið? Björninn hefði ábyggilega heldur viljað eiga kost á því að lifa af erfiðan flutning heldur en að vera skotinn þegar hann kemur máttfarinn í land
Viðbætum lokið
************************************************************************************
Einu sinni gekk ísbjörn á land akkúrat á nesinu þarsem ég á heima, það var hafísaveturinn mikla 1880-81. Sá björn var banhungraður og orðinn sturlaður eftir einveruna á ísnum. Vinnumaðurinn sá hann koma á land og hljóp af stað heim. Björninn elti og mennirnir rétt náðu að hlaupa inn í hús og gera byssuna klára. Hundur sem var bundinn fyrir utan bæinn varð munnbiti fyrir ísbjörninn (hann tók stóran bita úr hryggnum) og hann ætlaði að fara að ráðast til inngöngu í húsið þegar hann var skotinn úr glugganum.
Þrátt fyrir þetta óttast ég ísbirni ekkert. Áður en ég heyrði þessa sögu dreymdi mig einu sinni að það kom ísbjörn á land og hélt næsta nágrenni mínu í gíslingu og fór upp tröppurnar, ég var inni í húsinu dauðhrædd. Ég man þetta ennþá þó að mig hafi dreymt þetta fyrir mjög mörgum árum.
****************************************************************************************

Það er síðan eitthvað rosalegt líka að gerast í sambandi við dýr og táknræna atburði, útum allan heim.
Hérna eru linkar á örfáar sögur sem fjalla um sumt af því sem hefur verið að gerast í Bretlandi. Þess virði að lesa. Dásamlega merkileg dýr eru að fæðast og svona
Huggun harmi gegn. Blessuð sé minning bangsans…..
.
************************************************************************
zeriaph sagði,
júní 3, 2008 kl. 4:56 pm
Ekki sé ég eitt orð sem ég er ósammála kæra Anna Karen.
En þarna gafst tækifæri til þess að sýna að íslendingar eru miskunnsamir fyrir heiminum… sem þeir eru greinilega ekki.
Það er skömm af þessu og tel ég blóð vera á höndum þeirra sem frömdu þessa svívirðu!
halkatla sagði,
júní 3, 2008 kl. 5:59 pm
þakka þér zeriaph, við erum sammála um allt en sérstaklega þetta atriði:
“þarna gafst tækifæri til þess að sýna að íslendingar eru miskunnsamir fyrir heiminum… sem þeir eru greinilega ekki.”
það sorglegasta er að hinn almenni íslendingur syrgir björninn!
Eiríkur Ingvarsson sagði,
júní 3, 2008 kl. 6:59 pm
Fyrir okkur veiðimenn er þetta spennandi mál.
Umhverfistofa hefur ekki heimilað nema með leiðindum caliber sem hentar á þessa stærð af dýri.
Ég heyri ekki neinn “Dýravin” tala um það að 2 skot þurfti til að fella það…hvernig má það vera. Og þetta var gert með samþ. opinbera aðila. Það sem kemur frá US er drepið dýrið og spyrjum svo…. Lámarkið til að fella svona dýr er þung kúla með stóóóri hleðslu. Dýrið á þetta skilið að fá hraðan dauða
halkatla sagði,
júní 3, 2008 kl. 7:26 pm
það hefði átt að vera búið að skipuleggja viðbrögð við einhverju svona fyrir löngu. Ég hélt í mínum barnaskap að það hlyti að hafa verið gert. Svona er maður vitlaus. Hvað ef bangsinn hefði verið snarbrjálaður og börn á ferli? Hver bær á að hafa sína eigin neyðaráætlun til taks (með stórum skotum ef nauðsyn krefur) en ef það er einhver séns á að dýr sem þetta sleppi lifandi (og reyndar öll dýr að mínu mati) þá eiga hæstu herrarnir og frúrnar að gera allt til að við komum vel út, einsog siðmenntuð þjóð sem drepur ekki saklausa. Okkar ísbjörn var stórglæsilegur, ungt karldýr sem virtist mjög viðkunnanlegur. Hann skaðaði engan og verður minnst fyrir það.