Farið í hund og kött.

júní 30, 2008 at 9:45 pm (Uncategorized)

Hinn yndislegi Dennis Prager (hægriöfgamaður og repúblikani með meiru) talar hér við hundahvíslarann um heimili þarsem hundar og kettir búa.

Samantekt: það er alls ekki eðlilegt né heilbrigt að lifa dýralausu lífi!

Ég tek að sjálfsögðu fyllilega undir sjónarmiðin sem göfugmenni þessi eru að setja fram og ég er reyndar löngu búin að ákveða að gefa Kassöndru einhverntímann lítinn hvolp eða hund, það mun gerast þegar Guð vill að það gerist (og hundurinn mun svo sannarlega verða hennar hátign undirgefinn, en Karítas á bara eftir að leika við hann því hún er svo yndisleg og góð…)

Permalink 5 Ummæli

Af mönnum og bjarndýrum, einsog vanalega.

júní 30, 2008 at 12:19 pm (Uncategorized)

Permalink 2 Ummæli

Þvílíkur brandari (ófyndinn í meiralagi)

júní 29, 2008 at 10:21 am (Diabolique, power of the overlords)

Permalink 2 Ummæli

Tískuheimurinn riðar til falls!

júní 27, 2008 at 6:29 pm (Miðaldaspeki, Uncategorized)

Það eru engar ýkjur. Sá hryllilegi atburður skeði á tískusýningu í Brasilíu á dögunum, að spikfeitt súpermódel hlassaðist niður göngubrautina og fékk alla í salnum til að grípa fyrir augun, spúa upp hádegisverðinum og þar fram eftir götunum. Fjölmiðlar í Brasilíu eru brjálaðir yfir þessum viðbjóði (rassinum aðallega) enda er Brasilía helst þekkt fyrir að framleiða grindhoraðar módelgellur sem svelta sig til dauða fyrir 25 ára aldur (Blessuð sé minning þeirra)

Þessi tékkneska kusa (Karolína Kurkóva) lætur vonandi ekki sjá sig aftur í landi hinna vannærðu fyrren hún er búin að ná af sér þessum kílóum sem hanga um allt. Brasilíubúar eru greinilega ekki tilbúnir fyrir eitthvað þannig og þykir efalaust skárra að sjá stelpur í kistum heldur en súpermódel með fiturúllur á bakinu (ef við viljum fara í stríð við Brasilíu þá skulum við hóta þeim með mínum bakrúllum, þær gefa þessum ekkert eftir hehe)

Ég meina hvert stefnir þessi heimur ef við leyfum tískuhönnuðum að finnast eða gefa í skyn að “eðlilegt” fólk geti verið fallegt?

Myndir af hlassinu koma hér á eftir, augljóslega eru þær ekki fyrir viðkvæma…

Myndin sem vakti hörðustu viðbrögðin:

Permalink 7 Ummæli

Gúrkutíðin er búin!!!

júní 26, 2008 at 9:43 pm (Bestiary, Uncategorized)

Kattaslúður – Kattaslúður :D

Lennox Lewis hinn frægi boxari elskar ketti!

ég vissi ekki hver hann var rétt áðan en núna er hann sérlegur vinur… Ég get svo séð þennan stóra og myndarlega mann fyrir mér að leika sér við fullt af kettlingum. Umm, yndislegt. Þau (fræga fólkið í Celebrity Apprentice) voru spurð hvort þau elskuðu dýr og Lennox og Tito Ortiz (kærusti Jennu Jameson) stigu fram og voru þá spurðir hvaða dýr? og Lennox sagði “ketti”. Auðvitað, það er ekkert annað svar í stöðunni. Nema kannski ísbirnir. Ég heyrði ekki hvað hinn sagði en hann lítur ekki út einsog kattamaður.

ég hélt að öllum langaði að vita þetta á HINUM SÍÐUSTU OG VERSTU TÍMUM! ;)

Permalink 1 ummæli

Lærlingurinn og LRon

júní 19, 2008 at 3:35 pm (Uncategorized)

Einsog ég sagði hér á mánudaginn þá kom mjög dularfull og skrítin sending á bókasafnið til mín þann dag. Þetta var kassi frá Danmörku fullur af scientology bókum. Einnig fylgdi með dýrindis bréf þarsem gjöfin var útskýrð og kvittun fylgdi uppá 0.00 – því þetta var algjörlega ókeypis. Ekki hef ég heyrt um annað safn sem hefur fengið svona, amk ekki hér í nágrenninu. Ég veit því ekkert hvað þetta á að þýða eða neitt.

Ég skammast mín fyrir að viðurkenna það en ég horfði ekki á dvd-diskinn í gær, hann er samt afar merkilegur því þetta er eina viðtalið við LRon sem til er. Ég ætla að horfa á hann í kvöld, kannski. Ef ég er ekki of niðursokkin í The Apprentice, þeir þættir eiga hug minn allan þessa dagana, aldrei hefði mig órað fyrir því að kapítalistar og sölumenn gætu verið svona spennandi. Þeir eru æsilegri en wannabe módel, ég trúi varla að ég sé að segja þetta en það er satt. Ég veit hreinlega ekki um betri raunveruleikaþætti, ég er að horfa á bæði bandaríska og breska og er heilluð. Donald Trump er svo frábær. Ok nú skal ég hætta. En ég valdi að skrifa um þessa nýju ástríðu mína hér, í sama pistli og scientology bókamyndirnar eru. Það er of langt gengið að gefa lærlingunum sér blogg.

Staflarnir voru rosalegir…

Hér er ég! Andlitið sem starði upptil mín úr kassanum góða.

Fjórar forsíður af handahófi (bækurnar glansa og ilma vel, ég er samt bara búin að taka örfáar úr plastinu)

Og hér er LRon kallinn mættur á ný, hver déskotinn eða í nafni Xenu hvað á þetta að þýða?

Ég bjó bókunum góðan stað inní geymslu, og hvet hérmeð þá sem langar að sækja sér vitneskju um þessa háþróuðu dellu til þess að leita bara til mín framvegis :)

Aldrei hefði mig órað fyrir að Scientology ætti eftir að koma á svona óvæntan hátt inní líf mitt. Eftir alla neikvæðnina og hversu heitt ég hataði þennan söfnuð… jækjs. En fyrir þá hlið á mér sem hefur rosalega gaman af bulli, þá er þetta náttúrulega fjársjóður. Í gær opnaði ég t.d bókina: Scientology, a history of man, og get sagt að það blasti við strax í upphafi að sú bók væri góð. Ég opnaði bara einhversstaðar og lenti á kafla sem hét Being Eaten, og hann fjallaði um “að vera étinn”-engröm. Ekki spyrja mig hvað það er, mig langar ekki að vita það.

En komið hingað, þið sem þorið, í hið sérútvalda vísindakirkjubókasafn, og gæðið ykkur á öllu sem LRon bauð uppá.

Permalink 19 Ummæli

Stóri dagurinn!!!

júní 17, 2008 at 3:06 pm (Bestiary, persónulegt)

Í dag er mikill fagnaðardagur og ég læt hérmeð boð út ganga til allra sem heyra að í dag heldur Kassandra ísbjarnarmallakerling uppá 4ra ára afmælið sitt. Hún ætlar ekki að halda stóra veislu sjálf en hún þakkar náðarsamlegast fyrir ræðuhöldin og allt fjörið sem var skipulagt í tilefni dagsins hennar.

Annars erum við fjölskyldan að mestu bara með hugann við ísbjörn #2. Í gær kíkti ég t.d á yfirlit um heitar umræður á moggablogginu og það voru ábyggilega 80% þeirra helgaðar stóra bangsa! Ég var svo glöð yfir kærleikanum og dýraástinni sem þarna var sýnd að ég tárfelldi næstum en ég nennti bara að lesa sumt (hef of mikið að gera við að föndra og lesa um dianetics og það allt…), en svo var ég að fylgjast með fréttunum af því hvernig gengi í æðarvarpinu. Það er sorglegt að hugsa um lífsbaráttuna þar en svona er þetta bara, stór rándýr taka sinn toll og ég hef þegar tekið það mikinn (í lömbum, fiskum og kjúklingum sérstaklega) að ég ætla ekki að segja múkk til að gagnrýna bangsann. Mamma hlustaði á allar fréttir í gær og morgun og sagði mér að allt gengi vel so far, t.d að framganga löggunnar væri fagleg og til fyrirmyndar. Hjartað mitt tárfelldi því íslendingar eru flottastir þegar þeir eru að gera það rétta. Við getum það sko! Fólkið sem bloggaði eru líka dásamlegri en orð fá lýst. Ég get bara ekki sagt meira í bili, tilfinningarnar eru að svella upp í barmi mínum :D

Svo vil ég þakka Björgúlfi dúllurassi fyrir að leggja til peningana, þetta er það sem málið snýst um. Næst bjargar hann Kattholti og þá verð ég sátt :)

En oj hvað ég varð reið þegar ég heyrði um fábjánann sem virti ekki flugbannið, það á að nafngreina svona dólga svo að götudómsstólinn geti tekið á þeim…. þeir þurfa að sjá hvað gerist fyrir þá sem virða ekki ísbjörninn!

Ég er enn að hugsa um hinn ísbjörninn, þann sem lést. Hann var svo hrikalega góður og kærleiksríkur, alveg einsog þessi virðist vera.

Vonandi gengur vel að flytja hann, það á ekki að vera eins mikið mál og látið var í veðri vaka þegar fíaskóið átti sér stað og það verða fagmenn þarna til að fylgjast með og sjá um þetta. Ef það heppnast ekki þá var amk viljinn fyrir hendi til að gera hið rétta.

Permalink 5 Ummæli

Stjarnfræðilega undarlegur atburður á bókasafninu!

júní 16, 2008 at 4:22 pm (Miðaldaspeki, power of the overlords, í stuði með guði)

Ok einsog þið vitið þá vinn ég á bókasafni sem er bæði fyrir skólann og almenning og þar er næstum því ekkert að gera þessa dagana og ég hef það bara náðugt. Ligg í leti og skipulegg (ég er rosalega góð í því reyndar).

Í dag þegar ég mætti á svæðið beið mín einn risastór bókakassi, níðþungur. Ég átti ekki von á neinni sendingu og því síður sendingu frá Danmörku en þaðan kom stóri kassinn. Utaná honum var tilkynnt vel og vandlega að bókavörðurinn ætti bréf inní kassanum.

Ég hugsaði að eina skýringin á þessu væri sú að kennararnir hefðu sjálfir pantað dönskulestrarbækur án þess að láta mig vita og þarsem ég nennti enganvegin að fara að kíkja á það núna þá setti ég kassann bara inní geymslu. Svo var alveg pínuponsulítil traffik og ég gleymdi kassanum. Þangað til rétt áðan!

Guð minn almáttugur þið getið aldrei ímyndað ykkur hvað var í kassanum!!!

Úff hvernig á ég að byrja að útskýra…

Kassaræfillinn er troðfullur af bókum eftir L.Ron Hubbard um Scientology (brosandi andlit hans starði á mig þegar ég opnaði kassann), engar skáldsögur heldur bara pjúra vísindaspeki. Það eru meiraðsegja dvd diskar þarna líka og ég veit ekki hvað! Þetta eru fínar og flottar endurútgáfur á hans verkum, og innihald kassans er semsagt gjöf frá einhverju útgáfufyrirtæki innan Scientology til mín! Eða svona næstum því, ég er með umboð fyrir bókasafnið og bréfið var því til mín. Í bréfinu stóð næstum öll sagan á bakvið sendinguna og leiðbeiningar um hvar í dewey kerfinu ætti að staðsetja þessa miklu andans veislu!

Svona í alvöru talað þá er ég að fara á taugum útaf þessu. Mér finnst þetta svo óvænt og skrítið. Kannski er Xenu sjálfur að fylgjast með mér og telur mig merkilega einsog tóma krús ég meina hver í fjáranum veit? Eins gott að það séu ekki öll bókasöfn á Íslandi að fá þetta sent. Það myndi gera lítið úr minni reynslu af upplifuninni. Vanalega er Scientology sko mjög nísk og gefur engum neitt fyrir neitt nema peninga…

Ég skrifa ábyggilega meira um þetta innan tíðar, nú verð ég að fara og halda áfram að kanna innihaldið í kassanum, ég hljóp frá því á frumstigunum til að segja ykkur frá! (sorrí öll upphrópunarmerkin en mér finnst þetta dramatískt og spennandi)

og svo þarf ég bara að ná að jafna mig, einhvernveginn…

P.S Ég vil senda rosalegt kveðjuhróp til allra ísbjarnanna á Íslandi, félagar, þið eruð flottari en við mannfólkið öll til samans. Ég bið fyrir lífi ykkar (og sigri). Kassandra heiðursísbjörn sendir ykkur rosalega ást og væmin krúttlæti…

Permalink 5 Ummæli

Óvænt

júní 13, 2008 at 2:22 pm (Diabolique)

Vanalega eru grænmetisætur frekar pirrandi en ekki þessi:

Ísbjörninn var grænmetisæta

Það gerir morðið bara ennþá sorglegra :(

R.I.P.

************************************************

Hérna er annar ísbjörn

Permalink 3 Ummæli

Stórhættulegt svín.

júní 11, 2008 at 10:58 pm (Bestiary)

Hættulega sætt…

Þið getið lesið allt um það hér!

Stutta sagan er sú að þetta litla svín frá Englandi er með leðju-fóbíu, og þessvegna gat það ekki farið út að leika sér með hinum svínunum, þangað til bóndahjónin góðu fundu litla bangsaskó sem pössuðu á það, svínið elskar skóna sína og leikur sér nú hamingjusamt dagana langa :D

**********************************

ég rakst líka á aðra grein á vefnum um þennan dásamlega grísling og þar stóðu þessi skilaboð til PETA-samtakanna:

“I love meat. But I really don’t think I could bring myself to eat another piece of bacon if I pictured that very strip adorably slopping through a field in tiny, green boots. Use cuteness, PETA. Put the world’s animals in boots. And watch how quickly people toss the beef and enjoy a leaf.”

Permalink 9 Ummæli

Next page »