Í rusli

maí 22, 2008 at 9:33 am (power of the overlords)

Bretland hefur verið hálfgert draumaland í mínum huga í næstum 15 ár. Og ég er ekki með neitt eðlilega jákvæða fordóma fyrir bretum, mér finnst þeir bara langflottastir.

Þessvegna er svo leiðinlegt að lesa um það á hverjum einasta degi hvernig samfélagið þeirra er að fara í vaskinn! Á öllum sviðum….

Ég tók saman nokkrar átakanlegar sögur af Daily Mail sem fjalla um baráttu venjulegs fólks við alveg kolklikkað kerfi, sem kallast “the council”, en hjá því gengur allt útá geðsýkislegar, smámunasamar reglur um allt milli himins og jarðar… aðallega samt í sambandi við endurvinnslu og rusl. Því að það eru svo alvarlegir glæpir.

og á meðan lítilsilgdum lögum er framfylgt af offorsi veður óþjóðalýðurinn uppi í landinu sem aldrei fyrr, rænandi, skemmandi og myrðandi.

Óeinkennisklæddar “umhverfislöggur” fara mikinn úti á götunum og láta ekkert framhjá sér fara.

Mínir heittelskuðu bretar virðast vera einhverskonar tilraunadýr fyrir ógnarstjórn sem mun senn taka yfir stóran hluta heimsins (þ.e.a.s ef við leyfum það)

.

Faðirinn sem fyllti ruslatunnuna sína örlítið of mikið

.

Aldraða stríðshetjan sem kunni ekki að endurvinna

.

“The Council” vs garðyrkjuáhugamaður í ruslaneyð

.

Móðir á ystu nöf: setti aukapoka í ruslið!

.

Önnur móðir á ystu nöf: alltof snemma á ferðinni!

.

Svo er það fólkið sem lendir í umhverfislöggunni þegar það er úti á röltinu að versla eða fá sér snarl. Mj-g óhugnanlegar sögur, unnendur breskrar siðfágunar sýni aðgát við lesturinn, gríðarleg hætta á oföndun og jafnvel losti!

.

Móðir sektuð þegar barnið hennar missir frá sér örlítinn pulsubita sem dúfurnar átu strax

.

Ungabarn á glæpabraut: hendir frá sér dós

.

Ofurgangsterinn með eplakjarnann: 18 tíma fangavist og læti!

.

Móðir sýknuð fyrir að henda eplakjarna, eftir langa og harða baráttu.

.

mér finnst alltaf svo fyndið í svona fréttum að það sé tekið fram hvort um er að ræða föður eða móður, og sagt hversu mörg börn þau eiga.

Stundum velti ég fyrir mér hvort fólk einsog ég væri eitthvað ómerkilegra, en í mínu tilfelli ætti fyrirsögnin auðvitað að vera: “single, beautiful catlady charged with such and such” heheh, ekki satt?

.

Leyndarmál óhuggulegu rusl-nasistanna.

11 Ummæli

  1. Agný sagði,

    Til hamingju með nýja svæðið. Það er nú þegar komn þessi fasisma stjórnun leynt og ljóst ekki bara í Bretlandi heldur öllum vestrænum ríkjum og fyrstur í flokki er US gov…íslenski “rakkinn” eltir að vísu húsbóndann má segja hvert fótmál…
    Hér getur þú downlodað frítt ebook ( ég á hana á íslensku) sem að er alveg must read en hún lætur mann sko taka hausinn upp úr sandhrúgunni og má segja að maður fái nett veruleika sjokk..Þegar maður fattar í rauninni eitt plott þá er maður búin að fatta öll hin…
    NONE DARE CALL IT CONSPIRACY
    Copyright © 1971 by Gary Allen
    with Larry Abraham
    http://reactor-core.org/none-dare.html

  2. davíð sagði,

    mm yndisleg færsla, tek mér kannski bessaleyfi á eftir og vísa bara á þig á blogginu mínu í staðinn fyrir að skrifa mjög svipaðann pistill ;)

  3. halkatla sagði,

    takk Agný!

    Davíð auðvitað máttu vísa hingað, ég vil að sem flestir fái sjokk ;)

  4. Flower sagði,

    Þegar ég fór til London 2005 fannst mér hið fræga Oxford street alveg hrikalega sóða og óáhugavert. En úthverfin voru mun snyrtilegri. Svo hafa bretar það fram yfir bandaríkjamenn að þeir hafa mjög snyrtileg almenningssalerni.

  5. Gullwagon sagði,

    Það eru læti í þér góan, hér á worð-pressunni.

    Ég held að rótin að nýju heimssýninni sé djúp og mikil í gamla heimsveldinu, það kemur því ekki á óvart að þessi þróun sé á bullandi skriði þar í landi.

    Verra er að við á ísalandi erum að fikra okkur í þessa átt, lögregla og sérsveitir í reykjavík og (kanski sérstaklega?) á selfoxi beita sér ótæpilega gegn umhverfisglæpum á borð við fjúkandi pulsubréf, áfengir drykkir fyrir utan bari og svo pissandi borgarar.

    Burtséð frá hvort manni finnist smekklegt að fólk pissi utan í grindverk sín, þá er ljóst að lögreglan hunsar aðra glæpi, vegna þess að þeir “hafa ekki tíma” í allt. Sést bara betur þá í hvað þeir hafa tíma!

  6. enok sagði,

    Það er reyndar óskaplega þreytandi að ganga um Reykjavík þessa daganna, og horfa uppá ruslið um allt . Brotnar flöskur á öllum gangstéttum . Hrákaslettur og annar viðbjóður einkennir annað hvert strætóskýli . Unglingar virðast hafa einhverskonar ofnæmi fyrir snyrtimennsku og fögru umhverfi . En auðvitað geta aðgerðir yfirvalda farið aðeins yfir strikið, en ruslvæðingin er öllu verri !

  7. halkatla sagði,

    ég vil nú frekar drukkna í rusli heldur en að löggan fari að abbast svona uppá mig (með mína perfekt hegðan hvorteðer) en það er ekkert gaman að ruslinu heldur!

  8. Óskar Helgi Helgason sagði,

    Heil og sæl; Anna Karen, og þökk fyrir allt gamalt og gott !

    Um leið; og ég óska þér til hamingju, með nýju síðuna þína, vil ég þakka þér drengilega liðveizlu, að undanförnu.

    Því miður; Anna mín ! Þær eru margar,, Nönnurnar.

    Með kærri kveðju, sem oftar / Óskar Helgi Helgason

  9. halkatla sagði,

    það var sönn ánægja Óskar að veita þér lið! þó að það hefði verið betra ef þess hefði ekki þurft. Einhverjir nafnleysingjar útí bæ sem þora ekki að standa fyrir máli sínu (né skoðunum) og að ógleymdum Hádegismóamönnum geta bara ekki á sér setið með vitleysuna, að því er virðist. Endilega gerðu þig heimakominn hér, svo lengi sem ég nenni að halda þessu nýja bloggi við (ég stefni á stóra hluti en letin gæti svosem tekið öll völd)

    :D

  10. Linda sagði,

    Hæ hæ Anna mín, þetta er ömurlegt, unga mamman sem ætlaði að gefa dóttir sinni pulsubita sem síðan datt á götuna og hún á að fá sekt frá einhverjum umhverfislöggum, vá maður. Ætli skotar séu eins klikk, ég trúi því varla, menn sem ganga í sexy ullar vafningi (taktu eftir ég sagði ekki pils) get ekki verið með svona brengjlaða hugsjón.

    kv. Linda.
    ps. má ég gerast svo frökk að benda á nýjustu greinina mína á blogginu.

    Knús

  11. halkatla sagði,

    nýjasta greinin þín er frábær Linda, vonandi kíkja bara sem flestir á hana.

    Ég hef trú á bretum og að þeir brjóti sig undan ruglinu bráðum, skotarnir geta verið í fullum skrúða á meðan ;)

Rita ummæli