Í tilefni af vinsældum ritskoðunarviðhorfa á fróni
Ég var að rekast á frétt áðan um Scientology og mótmæli gegn þeim sem áttu sér stað á Englandi nýlega. Hópur sem kallar sig Anonymous hefur verið mjög duglegur að berjast gegn S og skipuleggur allskonar aðgerðir, bæði á netinu og í raunheimum.
Einn fimmtán ára drengur sem tók þátt í mótmælunum og bar skilti sem á stóð að S væri költ fékk aðvörun frá löggukonu og ég á svo gott sem ENGIN ORÐ yfir það sem gerðist næst! Honum var sýndur þessi miði

og núna er hann kannski að fara fyrir rétt!!!
fréttin tekin af religionnewsblog:
Within five minutes of arriving, the teenager was approached by a female police officer and told he was not allowed to use the word “cult” to describe Scientology, and that the Inspector in charge would make a decision. Soon afterwards officers again approached, read Section 5 of the Public Order Act 1986 and handed him this notice.
The Act makes it an offence to display “any writing, sign or other visible representation which is threatening, abusive or insulting, within the hearing or sight of a person likely to be caused harassment, alarm or distress thereby”.
In response, the teenager quoted back a High Court judgement from 1984. Justice Latey repeatedly said in a family division case that Scientology was a “cult” – one that was “immoral”, “socially obnoxious”, “corrupt”, “sinister” and “dangerous”.
Mér finnst þessi strákur æðislegur og auðvitað styðja allar siðferðislega meðvitaðar manneskjur þessar aðgerðir mótmælendanna! Hvað annað?
Ég gæti varla sleppt því undir neinum kringumstæðum að móðga þessa költista og þeirra viðbjóðslega költ, ekki frekar en Dokksi getur sleppt því að móðga ýmis skipulögð trúarbrögð og fylgjendur þeirra. Live and let live segi ég, svo lengi sem enginn er beittur ofbeldi né gerð tildrög að því að meiða einhvern. Ég myndi ráðast að þeim fyrir að tilheyra stofnun sem hefur raunverulega drepið fólk fyrir að reyna að hætta, og sem hefur eyðilagt óteljandi fjölskyldur og gert margt margt fleira illt. Peningahliðin og hvernig fólk er gert gjaldþrota fyrir svokallað “nám” er svo önnur hlið á hryllingnum sem ég nenni ekki einu sinni að fara útí. Það kemur mér ekkert við hverju þau trúa (þó að ég ætti að mega hlæja að því eins mikið og mig lystir og skrifa um það líka, jafnvel á stór spjöld) en það er allt annað að gagnrýna þau fyrir ofbeldi, kúgun og annan slíkan viðbjóð – EINHVERJIR VERÐA AÐ STANDA UPP OG VEIFA FINGRINUM FRAMAN Í ILLSKUNA!!!
Ég veit um fólk sem lífið hefur hreinlega verið eyðilagt hjá af Scientology, það er fólk sem hefur eytt bestu áratugum ævi sinnar í að vinna hroðalega erfiðisvinnu fyrir költinn, án þess að fá laun, og þegar þau hafa reynt að hætta í honum (margoft) hefur þeim verið hótað öllu illu og fjölskyldum þeirra líka
Þetta er svo sorglegt og ógeðslegt…. og það eina sem maður getur gert er að kalla þetta “hættulegan költ” – er það nú orðið glæpsamlegt líka?
Only in the UK……..
But coming to Iceland real soon….
Eina ástæðan fyrir því að liðið móðgast er vegna þess að þetta er satt.
Ísland er ekki orðið jafn slæmt í ritskoðun, kúgun og bilun einsog Bretland, en við nálgumst það óðfluga, sérstaklega ef maður fer að spá í því sem hefur verið að gerast á blog.is og hvernig margir virðast hreinlega bara sáttir við að lokað sé á blogg eða aðgangur fólks skertur vegna skoðana. Ég get ekki fengið heilann minn til að meika sense úr þessu. Þetta fólk sem segir að svona lagað sé nauðsynlegt eða af hinu góða er á móti málfrelsi og tjáningarfrelsi, það er það eina sem hægt er að segja um þau. Því miður. Ég ber enga virðingu fyrir þeim né þeirra skoðunum, hversu lengi ætli það verði í lagi fyrir mig að segja það?
Þessi miði er svo ógnvekjandi
En allavega, 15 ára strákurinn er algjör hetja
Hann mun sigra þetta, ég hef ekki trú á öðru.

davíð sagði,
maí 21, 2008 kl. 2:57 pm
ji minn þetta er hryllilegt, Bresk yfirvöld eru gjörsamlega að missa sig í geðveiki, political correctness gone mad eins og Mark úr peep show segir.
Varstu búin að heyra um umhverfisverndarflippið þeirra? sem dæmi þá var venjulegur fjölskyldu faðir handsamaður af 4 lögreglumönnum og læstur í fangaklefa fyrir að vera grunaður um að henda eplakjarna á götuna? Ég ítreka GRUNAÐUR….
ástarkveðjur til þín, kassíusar og karítasar frá okkur Ástu og kisufjölskyldunni
DoctorE sagði,
maí 21, 2008 kl. 3:12 pm
Hey babe, ég var búinn að blogga þetta… það er allra réttur að gagnrýna trúarbrögð og hananú
halkatla sagði,
maí 21, 2008 kl. 3:15 pm
já ég heyrði um það! Bretland, uppáhalds landið mitt (á eftir Íslandi) er að fara fjandans til!
ég er búin að vera svo ofvirk síðan ég flutti mig hingað í gær að ég er búin að skrifa 2 aðra bloggpistla sem ég á bara eftir að setja inn (ætla að bíða með það þartil í kvöld og nótt) annar þeirra er um ruslanasistana í UK og já, hann fjallar líka um þetta eplakjarnamál og snúðamylsnumál (lítið barn sem missti snúðsbita á götuna sem fauk svo í burtu en löggan kom og sektaði mömmuna)
bestu kveðjur til ykkar frá neskisunum, Karímúsa er alltaf að fara út, fílar sig rosalega vel
halkatla sagði,
maí 21, 2008 kl. 3:18 pm
ef einhver reynir að banna þér það Dokksi minn þá hóarðu í mig og ég blogga þá alveg hægri vinstri upp og niður þar til þeir læra að skammast sín!
Þarfagreinir sagði,
maí 21, 2008 kl. 5:25 pm
Þetta virðast vera gömul lög hjá Bretanum, og þau eru undarlega yfirgripsmikil. Bannað að móðga fólk með skiltum? Þá er ég nú hræddur um að lítið fútt yrði í öllum mótmælum á Bretlandi, ef þessu væri fylgt stranglega eftir.
Eitthvað segir mér þó að ítök Vísindakirkjunnar og lobbýismi valdi því að hún fær hér einhvers konar sérmeðferð …
kiza sagði,
maí 21, 2008 kl. 8:10 pm
Já, Vísindakirkjan er óhuggulegt fyrirbæri, sérstaklega þegar maður fer að kynna sér starfsaðferðir þeirra aðeins nánar…Þetta er meiri leynipukursmakkið alltsaman.
Anonymous hafa staðið fyrir mótmælum í Bretlandi, Bandaríkjunum og einhverjum öðrum borgum í Evrópu, þetta eru meinlaus mótmæli og ganga alls ekki út á neins konar ofbeldi eða hatursáróður, meira svona…hvað á ég að segja….’flippuð’ mótmæli þar sem allir mæta með grímur og skilti og fríka fólk út. Alls ekki violent. En vekur athygli á málstaðnum.
Biðst afsökunar á þessari risavöxnu mynd en ég nennti ekki að resize-a
sorry….
kiza sagði,
maí 21, 2008 kl. 8:11 pm
um…ok.
Myndin sem ég hélt ég hefði sett inn birtist ekki, en hér er linkur að henni:
http://kiza.blog.is/users/63/kiza/img/offuck_internet.jpg
Tekið á mótmælunum í London 15.febrúar s.l.
Sigga á 17...einu sinni. sagði,
maí 21, 2008 kl. 8:30 pm
Já, og ekkisens flakk er þetta á þér kona.
En þá er bara að hitta á þig hér.
Já, víða pottur brotinn í Bretlandi, hvað varðar skoðunar- og málfrelsi. Er eitt af mínum uppáhaldslöndum líka, og var með annan fótinn í London árum saman hér í den. Fann vel þess stífni bretannna, þegar kom að reglum og ævagömlum lögum og reglugerðum. Halda óneitanlega fast í allt gamalt, og stundum er það ágætt, en stundum til vansa. Og believe me, ég og mínir ferðafélagar lentum í þeim hvað “hverfaskiptingu” hins langa arms lagannna varðar, þar í í London. Þar mátti engu hnika, eða breyta til að greiða fyrir.
Fínn pistill, Anna.