Dramadrottning hefur fært sig um set
Já og hingað er ég komin. Ég hyggst skrifa meira um þennan óvænta flutning innan tíðar, en er bara mjög þakklát ef einhver nennir að fylgjast með mér á þessum nýja stað. Það er auðvitað ekki líklegt til vinsælda að koma sér fyrir einhverstaðar í afdölum orðapressunnar þarsem enginn sér mann né heyrir til manns frá landinu góða, en ég er hvorteðer ekkert að sækjast eftir vinsældum. Já ég er sterk að því leitinu til, heillandi sambland af viðkvæmni og styrk
Ég mun sakna bloggvinanna minna á mbl, vonandi færa þeir sig bara allir hingað líka ha humm, það er sko frábært að blogga hér, allt kerfið er meira og minna á íslensku ef maður biður um það.
Sjáumst hress og lifið heil !!!
Kári Harðarson sagði,
maí 20, 2008 kl. 10:53 am
Velkomin !
Jæja, hvað hefurðu á móti blog.is ?
Kveðja, Kári
Sigurður Þór Guðjónsson sagði,
maí 20, 2008 kl. 10:58 am
Velkomin á nýju síðuna! Hefði annars ekkert á móti smá erótísku bloggi- en alls ekki dónalegu, guð minn góður í hæstu hæðum! Mali biður að heilsa öllum kisum þó hann geti ekki sveiflað skottinu sínu.
alva ævarsdóttir sagði,
maí 20, 2008 kl. 11:24 am
ja hérna, þetta er í 3ja skiptið sem ég skrifa og það dettur alltaf út.þ..en ég mun sko örugglega fylgjast með þér Anna, frábær penni og athyglisvert hjá þér. Mbl er alveg að skíta á sig…veit ekki hvað þeir eru eiginlega að pæla, þetta verður orðinn ansi einsleitur hópur ef þeir hætta þessu ekki, ég er að fara að flytja mig annað. er að skoða blogspot núna. En ef þú veist hvert doksinn fír viltu þá senda mér linkinn á síðuna mína. læt þig fá linkinn á nýju síðuna mína þegar ég hef fundið þá réttu. Gott hjá þér að skipta um svæði!!
alva ævarsdóttir sagði,
maí 20, 2008 kl. 11:24 am
…bestu kveðjur til þín og kattanna!!!
halkatla sagði,
maí 20, 2008 kl. 11:25 am
jei bara strax komnir gestir!!
verið velkomnir, sérstaklega hann Mali, ég mun leggja mig fram til að hann getið malað sem mest
pirrlisti minn gegn blog.is alltof langur til að skrifa hann allan upp, en ég get alveg viðurkennt að velþóknunarlistinn er líka langur, blog.is er án efa þægilegasta bloggkerfi sem ég hef kynnst… það er bara þegar einhver abbast uppá mína bloggvini sem mér er nóg boðið og þetta var eina leiðin til að mótmæla… ég efast ekki um að umferðin um svæðið mun núna minnka til muna, hehehe.
Jenný sagði,
maí 20, 2008 kl. 11:41 am
Hvaða, hvaða, bara rokið burt í prímadonnufýlu? Hehe, auðvitað fylgist ég með þér kjéddling á þessum útnára og til að gleyma þér ekki vitleysingurinn þinn, þá set ég þig í favorits.
Knús á þig addna.
Þarfagreinir sagði,
maí 20, 2008 kl. 12:15 pm
Ég mun fylgjast með áfram, þó ég hafi verið latur við að gera athugasemdir.
halkatla sagði,
maí 20, 2008 kl. 12:49 pm
með ykkur innanborðs mun þetta verða prima gleðskapur
DoctorE sagði,
maí 20, 2008 kl. 1:26 pm
Maður eltir þig á röndum Anna mín, can’t help it
Gunnar Svíafari sagði,
maí 20, 2008 kl. 1:29 pm
Auðvitað fylgist ég með þér – Það er jafn auðvelt að lesa það sem þú skrifar hér sem þar.
Linda sagði,
maí 20, 2008 kl. 3:15 pm
Hæ Anna mín, veistu ég á eftir að sakna þín, en ég set þig á tenglalistan hjá mér, gangi þér ógeðslega vel hér og vertu ófeimin við að láta mig vita þegar þú skrifar færslu hér, vil helst ekki missa af neinu.
Knús
zeriaph sagði,
maí 20, 2008 kl. 4:11 pm
Ég man nú eftir því að þú varaðir við þessari breytingu inná vísi. En ég er með svona líka og hver veit …
mbk,
Guðsteinn Haukur
Gullwagon sagði,
maí 20, 2008 kl. 4:14 pm
Hæ – þú brennir góðvildarbrýr að baki – sýnist að færslan þín “þá er ég farin” poppi ekki upp á blogg forsíðuna eins og þínar fyrri færslur gerðu
Gangi þér vel á dobbúljú
halkatla sagði,
maí 20, 2008 kl. 4:42 pm
noh ég fagna því að mbl sjái sér fært að lítilsvirða mig, þá erum við loksins komin í jafningjasamband
halkatla sagði,
maí 20, 2008 kl. 4:43 pm
ég vona bara að þeir eyði ekki blogginu mínu í einhverju pirrkasti, það kæmi mér ekkert á óvart
Henry / Promecius sagði,
maí 20, 2008 kl. 4:50 pm
Til hamingju með að vera kominn yfir á bloggsamfélag með almennilegt bloggkerfi.
Hef bókmerkt þig.
Flower sagði,
maí 20, 2008 kl. 6:27 pm
Já Anna þú losnar sko ekkert svo glatt við okkur. Ég ætla að setja þessa síðu í bookmarks hjá mér
Ásdís Sig sagði,
maí 20, 2008 kl. 7:55 pm
Hæ skottið mitt. Búin að setja þig í favourites stattu þig vel í nýju bloggi.
Guðrún Sæmundsdóttir sagði,
maí 20, 2008 kl. 9:28 pm
voðalegt vesen er þetta! ég er ekki nógu tölvuklár til að eltast við fólk útum víðan netvöll, en maður verðu víst að láta sig hafa það til að fylgjast með góðum skrifum hjá þér Anna Karen:)
halkatla sagði,
maí 20, 2008 kl. 10:24 pm
það gleður mig ekkert smá að taka á móti ykkur, sérstaklega eftir að þið hafið lagt á ykkur svona langferð bloggheima á milli
– vonandi hef ég þá uppá eitthvað að bjóða…
kiza sagði,
maí 21, 2008 kl. 8:17 pm
Bókamerkt!
Vona að maður rekist nú samt á þig í kommentunum off og on..
- Jóna (og kattardýrin Baldur og Ninja)
halkatla sagði,
maí 21, 2008 kl. 8:21 pm
þú munt án efa rekast á mig þar