Flott japönsk læða

Wearing a stationmaster’s cap of Wakayama Electric Railway, the nine-year-old female tortoiseshell cat named “Tama” sits on a ticket gate at Kishi station on the Kishigawa line in the city of Kinokawa, in Wakayama prefecture, on May 22
.
Sko við erum að tala um að hún Tama er eina kvendýrið sem starfar við yfirstjórnun hjá einu japönsku lestarfyrirtæki. Hún er nýja hetjan mín því ég myndi aldrei nenna þessu. Tama fæddist á lestarstöðinni og var ættleidd af búðarmanninum við hliðina, svo fékk hún starfið á lestarstöðinni og varð fræg í kjölfarið. Þannig fjölgaði farþegum mikið þökk sé henni. Störf hennar voru svo mikils metin að hún kleif metorðastigann í fyrirtækinu hratt. Einu launin sem hún fær eru matur, en hún heldur sér þrátt fyrir það ennþá tígulega, þó að hún sé orðin miðaldra. Endilega lesið sögu hinnar merku Tömu.
Í Japan er það orðatiltæki þegar hlutirnir ganga illa að þá megi sko biðja kött um hjálp, svo á líka að stafa frá þeim lukku, sem er bara æðislega gáfuleg þjóðtrú!
Brot á bannhelgi Athosar fjallsins heilaga.
Hérna er fréttin sem ég er að fara að skrifa um
Það mega engar konur koma til fjallsins, og ekki getur það komið til þeirra. Það búa bara munkar á þessu fjalli og þeir vilja helst ekki einu sinni hitta kvenkyns dýr. Þannig hefur þetta verið í næstum þúsund ár, síðan árið 1060 er konum var bannaður aðgangur í munkaparadísinni. En um daginn breyttist það allt því þá komu 4 konur þangað í bát og voru að spóka sig á fjallinu þegar munkarnir sáu þær. Allt varð ekki vitlaust en þeir neyddust til að fyrirgefa konunum hið ægilega brot.
Sorrí, en mér finnst þetta svo ömurlegt. Það voru komin næstum því þúsund ár… og grey munkarnir ætluðu örugglega að halda alveg útúrbilaða veislu árið 2060 til að fagna því!

Það er einmitt svo einkennandi fyrir konur þessi hugsunarháttur, að þó að þær megi fara um öll fjöll og firnindi allsstaðar þá þurfa þær samt að brjótast inná helgisvæði munnkanna sem er auk þess líka andlegt heimili rétttrúnaðarkirkjunnar.

(í raun á þessi pistill meira heima á gamla blogginu en ég vil halda þessum hádegismóamönnum á tánum, grátbiðjandi um að ég skrifi meira hjá þeim helst, hehehe)
Áríðandi tilkynning til allra
Þeir sem ætla að lesa þetta blogg verða að vera ógeðslega til í að meðtaka allskyns hluti sem mér finnst skemmtilegir því það er hrikalega gaman að því sem lífið hefur uppá að bjóða. Næstnýjasta bloggfærslan mín sannar allt um það. Ég veit að þetta mun verða sem ný trúarbrögð fyrir þeim sem er að lesa. Enda er ég algjörlega hætt að blogga á blog.is nema sem hinn harðsvíraðasti og einfeldningslegasti trúarofstækismaður. Nei án gríns, það verður bara trúarblogg framvegis og alveg ótrúleg gelgjulæti lon og don hér

En þetta vildi Jenný Anna (að ég héldi mig líka við blog.is) og ég ætla svo sannarlega að gera það, ha-ha-haa!
***************************************************
En hérna mun ég geta baktalað allt og alla og sagt allskyns ljótt um þá sem eiga það skilið án þess að eiga á hættu að lenda á forsíðu mbl.is, það var algjört hell sem eyðilagði allt.
Plís horfið á myndböndin – en farið ef þið meikið ekki mína hrikalegustu vitfirringu!!!
cuckooshoe:
“12 points from scotland
best eurovision song in years
3 minutes of pure joy”
Ég nenni ekki að skrifa um eurovision því það er bara eitt sem kemst að, og það er lagið sem ég hélt með, hinn guðdómlegi bosnesk-hersegóvínski óður um eitthvað þvottadæmi sem var svo ólýsanlega geðveikt. Jámm, þetta var eurovsion fyrir mér og þó að vinir mínir hafi ekki verið að fatta þetta strax þá lagaðist það nú eftir keppnina þegar ég fann þetta á netinu til að sýna þeim. Annars er ég ekki heima hjá mér og það er ótrúlega erfitt að blogga eða vesenast í annarra tölvum. Ég bara grátbið ykkur um að gefa þessum myndböndum séns. Sko, söngvarinn er minn nýji draumamaður (Elvir Lakovic Laka). Hann er bara svo seiðmagnaður og yndislegt krútt. Og dansinn er sá besti síðan Verka var í fyrra. Það er mitt allra mest uppáhalds lag, með besta dansinum og besta taktinum, en kynþokki söngvarans í þessu yfirvinnur Verkaaðdáunina. Finnarnir voru ekki til fyrir mér en þeir máttu samt alveg lenda í þriðja sæti. Það komst bara ekkert að nema þetta lag. Sorrí, ef þið bjuggust við því að ég hefði skoðun. Mér fannst Ísland mjög flott og bara gott mál að við náðum að vinna Svíþjóð með yfirburðum. Sigurlögin gjörsamlega gengu að þessari keppni dauðri. Þvílík viðurstyggð og lágkúra að ég hefði getað sokkið ofaní jörðina ef ekki hefði verið fyrir þessa engla frá Bosníu Herzegóvínu sem ég gæti skrifað lofræðu um í margar aldir hreinlega. Ég hafði bara séð það og heyrt einu sinni í undankeppninni og þoldi ekki leikatriðið en fílaði lagið. Það breyttist í kvöld þegar ég byrjaði að hafa sjúklegar fantasíur um þennan náunga í stað finnska villimannsins. Ég þráði að þvo framan úr honum málninguna en það meikaðist alveg og ég hélt með þessum og gæti vel hugsað mér að búa ein útí skógi með honum og systur hans. Já, ég er dáldið geðveik en ég er líka piparjónka. Og þetta lag hreinlega bjargaði eurovision.
Hérna fyrst þetta fyrst í undankeppni. Ótrúlega siðfágað og listfengt, meira en orð fá lýst. Ég er stolt af því að láta af Verkageðsýkinni og láta þetta taka við því. Dansinn og söngurinn og lagið er bara æðislegt. Það þarf að hækka í botn en ef þú ert að lesa þetta hefurðu enga afsökun og verður að horfa. Þú undirgekkst inskonar samning við mig og almættið um leið og þú komst hingað inn. Þetta er skoðanakúgun af verstu sort
Svo er það besta eftir!!! Þið verðið að horfa á þetta líka!
Ég hélt að dýr hefðu aldrei tekið þátt í eurovsion, amk vissi ég ekki af því. En þá finn ég bara þetta á netinu (ég var nýbúin að segja það upphátt og fann svo þettea næsta myndband) Hérna er hinn stórkostlegi prins með dýr með sér á sviðinu. Gjörið svo vel, dásamlegasta eurovisionatriði allra tíma því það er hæna í því:
Ég ætla aldrei að gifta mig því að hann er sennilega ekki á lausu fyrir mig.
Íslendingarnir stóðu sig ótrúlega vel og lögin sem unnu voru hórur. Fyrst viðbjóðslega karlhóran með leiðinlegasta lag í heimi næstum því og svo komu glyðrurnar hver annarri hryllilegri og Noregur! Noregur oj var efst af þessum Norðurlöndum. Hryllingur. Ég hefði látið þetta lag vinna, Svo Serbíu, Finnland og loks Ísland og Danmörku í 5.sæti því þeir eru svo góðir og yndislegir frændur og Svíar eru líka mjög góðir. Það var frábært að loksins þegar við fengum 12 stig þá var það seinasta stigið sem gefið var.
Hér er hann í viðtali og hérna sést að hann er næs og flottur en alveg 3 sinnum flottari þegar hann er að syngja. En þið þurfið ekki að eyða tíma í það frekar en þið viljið því ég ætla að lýsa því sem hann segir.
Boðskapurinn í laginu er rosalega fallegur en ruglingslegur. Og dramatískur! En ruglingslegur…
Hann vill hafa kjúklinginn sinn með sér en gat það ekki. Hann er með æði fyrir hænsnfuglum og vill sjá fleiri dýr í keppninni alveg einsog ég. Guð, ég er svo ástfangin af honum.
Og hann fílaði Verka (ég var bara að horfa á þetta seinasta myndband meðan ég skrifaði, og hann elskaði Verka frá Úkraínu líka einsog ég, en fílar annars ekki Eurovision, hann er svo ……. þetta var erótík ársins, ég mun aldrei skrifa svona grófa hluti aftur en þessi maður er bara fullkominn)
Ég verð að fara fram og vera með vinum mínum en ég bara get ekki annað en hrópað – ég elska þetta lag!!!! Og það er svo gaman að vera til sorrí.
Hérna er svo myndband af þeim í lokakeppninni – list á æðra stigi.
Bíræfinn bókavörður bregður sér af bæ.
Ég er sko bara alveg rétt ófarin í helgarfríið mitt, leiðin liggur til Reykjavíkur þarsem ég mun horfa á Ísland sigra Eurovision með glæsilegasta brag sem hugsast getur. Fólk sem veðjar á sigur okkar eftir ábendingar frá mér getur haft samband við mig eftir helgi og fengið bankanúmer til að leggja inná tíund fyrir “innherjaupplýsingarnar” ekki að ég sé að biðja um mikið, en kettirnir þurfa mat og ég þarf málningardót.
Áður en ég fer vil ég bara vísa ykkur á dásamlegustu grein sem ég held að ég hafi nokkru sinni lesið. Hún er svo undraverð og ótrúleg. Ég get ekki hætt að hugsa um Amilliu litlu og það sem þetta þýðir fyrir mannkynið. Foreldrar hennar eru líka alveg rosaleg. Ef þið haldið að þetta sé bara um eitthvað “dáldið” merkilegt þá er það mjög mikill misskilningur. Þetta er hjúds.

.
Svo er hérna þýðingin mín á völdum köflum úr frægustu ræðu Russell Means, það er aldrei hægt að fá nóg af honum, því ver og miður
Og já, meðan ég man, 15 ára strákurinn sem reis upp gegn Scientology þarf ekki að fara fyrir rétt, haha!
.
*****************************
.
Þetta er ekki búið síður en svo! Sem betur fer get ég vísað ykkur á einn ALLRA BESTA sjónvarpsþátt sem ég hef nokkru sinni séð. Hann er ekkert frægur samt. Heath Ledger leikur aðalhlutverkið. Og þetta er rosalega ævintýralegt og yndislegt, fullkomlega einsog gott sjónvarpsefni á að vera.
alveg síðan þessir þættir voru sýndir á rúv (klukkan 22 á manudagskvöldum – sko ég man það enn) hef ég þráð að sjá þá aftur. En ég verð að bíða þartil eftir helgi með að byrja almennilega að njóta þeirra að nýju.
.
Og vanmetnasti sigurvegarinn í ESC:
.
.
******************************
ég verð því miður að vísa ykkur á þessa grein líka, gat bara ekki annað því mér finnst þetta svo hrikalegt. Er skyldulesning en gerið ykkur viðbúin fyrst.
Í rusli
Bretland hefur verið hálfgert draumaland í mínum huga í næstum 15 ár. Og ég er ekki með neitt eðlilega jákvæða fordóma fyrir bretum, mér finnst þeir bara langflottastir.
Þessvegna er svo leiðinlegt að lesa um það á hverjum einasta degi hvernig samfélagið þeirra er að fara í vaskinn! Á öllum sviðum….
Ég tók saman nokkrar átakanlegar sögur af Daily Mail sem fjalla um baráttu venjulegs fólks við alveg kolklikkað kerfi, sem kallast “the council”, en hjá því gengur allt útá geðsýkislegar, smámunasamar reglur um allt milli himins og jarðar… aðallega samt í sambandi við endurvinnslu og rusl. Því að það eru svo alvarlegir glæpir.
og á meðan lítilsilgdum lögum er framfylgt af offorsi veður óþjóðalýðurinn uppi í landinu sem aldrei fyrr, rænandi, skemmandi og myrðandi.
Óeinkennisklæddar “umhverfislöggur” fara mikinn úti á götunum og láta ekkert framhjá sér fara.
Mínir heittelskuðu bretar virðast vera einhverskonar tilraunadýr fyrir ógnarstjórn sem mun senn taka yfir stóran hluta heimsins (þ.e.a.s ef við leyfum það)
.
Faðirinn sem fyllti ruslatunnuna sína örlítið of mikið
.
Aldraða stríðshetjan sem kunni ekki að endurvinna
.
“The Council” vs garðyrkjuáhugamaður í ruslaneyð
.
Móðir á ystu nöf: setti aukapoka í ruslið!
.
Önnur móðir á ystu nöf: alltof snemma á ferðinni!
.
Svo er það fólkið sem lendir í umhverfislöggunni þegar það er úti á röltinu að versla eða fá sér snarl. Mj-g óhugnanlegar sögur, unnendur breskrar siðfágunar sýni aðgát við lesturinn, gríðarleg hætta á oföndun og jafnvel losti!
.
Móðir sektuð þegar barnið hennar missir frá sér örlítinn pulsubita sem dúfurnar átu strax
.
Ungabarn á glæpabraut: hendir frá sér dós
.
Ofurgangsterinn með eplakjarnann: 18 tíma fangavist og læti!
.
Móðir sýknuð fyrir að henda eplakjarna, eftir langa og harða baráttu.
.
mér finnst alltaf svo fyndið í svona fréttum að það sé tekið fram hvort um er að ræða föður eða móður, og sagt hversu mörg börn þau eiga.
Stundum velti ég fyrir mér hvort fólk einsog ég væri eitthvað ómerkilegra, en í mínu tilfelli ætti fyrirsögnin auðvitað að vera: “single, beautiful catlady charged with such and such” heheh, ekki satt?
Guðanöfn
Athyglisgáfan mín var svo opin í gær meðan ég horfði á eurovision að ég hjó eftir því að alveg fáránlega margir flytjendur (hljómsveitir og einstaklingar) kölluðu sig goðanöfnum eða einhverju goðatengdu.
Það er ekki ávísun á neitt gott samkvæmt gúrúinu mínum honum Matthew Delooze… í hvert sinn sem við hlustum á og fögnum yfir því að t.d “Isis” sé að syngja þá sogar það orku frá okkur og yfir í fjórðu víddina!
Ekki vil ég að við gefum orkuna óafvitandi, þessvegna varð þessi pistill til.
Ég fór á netið og tjekkaði á nöfnum þeirra allra, og tók þá eftir enn fleirum sem eiga nöfn er falla í þennan flokk. Þessi eru mest áberandi en svo voru nokkur önnur nöfn þarna líka sem hefði mögulega verið hægt að troða með – en það hefði samt verið langsótt. Ég tjekkaði ekkert á þeim flytjendunum sem eiga eftir að syngja en mun spá í þeim á morgun, kannski var þessu bara raðað eitthvað asnalega og allt þetta guðdómlega var í gær, kannski, kannski….

.
Ísrael – Boaz
Söngvarinn heitir Bóaz og það er ekkert óeðlilegt enda hétu Ísraelar þessu nafni líka í gamla daga, en ef við viljum hafa áhyggjur af þessu þá verðum við að horfa framhjá því og líta til alþjóðlegra frímúrara. Þá kemur nefninlega margt í ljós. Boaz er nafnið á annarri súlunni sem tengist hofi Salomons. Hof Salomons skiptir nánast öllu hjá frímúrurum og þeir læra stöðugt meira um dulspekilegfræði í sambandi við hönnun, byggingar, iðnað og fleira, eftir því sem þeir vígjast inní æðri gráður. Súlurnar eru tvær og skipta gríðarlegu máli í allri táknfræði frímúrara, þeir representa þær einhvernvegin í öllum sínum félagshúsnæðum, við innganga og annarsstaðar, en fólk er kannski ekkert mikið að spá í því. Þær heita Boaz og Jachin og það er sagt frá þeim í Biblíunni.
.
San Marino – Miodio
Mig grunaði að þetta þýddi eitthvað spúkí og tjekkaði með því að leita á google og jú viti menn, grunur minn var á rökum reistur. Það gerist sko ekki rosalegra, hljómsveitin kallar sig “guð minn” – hehe
.

.
Belgía – Ishtar
Hljómsveitin skírði sig eftir babýlónsku ástargyðjunni og væntanlega henni til dýrðar? Nú fer þetta sko fyrst að verða eitthvað hardkor. Ishtar er ein af frægustu gyðjunum á þessu ævaforna menningarsvæði. Hún var mjög tengd við kynlíf (og ólifnað), og hennar helgasta borg var meiraðsegja kölluð “bær hinna heilögu gleðikvenda”. Það er hægt að finna ýmsar samsvaranir milli hennar og Freyju í goðsögnum og helgikvæðum, það er meiraðsegja ekkert erfitt. En kannski er það svosem ekkert skrítið, þessi goð eru meira og minna öll eins!
Þið getið lesið ykkur nánar til um hana Ishtar með því að:
eða þá
.
Azerbaijan – Elnur & Samir
Í þessu tilfelli skiptir það ekki svo miklu máli hvað söngvararnir heita, heldur snýst þetta meira um hvað þeir gerðu á sviðinu. Fyrst kom annar þeirra inn í englabúningi með risavængi, svo sá maður hinn náungann og hann var greinilega að leika djöfulinn, sat svartklæddur í hásæti með iðandi djöflakvendi í kringum sig og á hápunkti lagsins hellti hann úr bikar yfir eina gelluna og mér sýndist það eiga að vera blóð, allavega ákvað ég að það ætti að vera blóð. Þetta var sjúkt atriði og geðveikt flott. Algjört angels and demons og annað eins drama hefur bara aldrei sést í eurovision fyrr né síðar!
Svo þegar ég var að gá að nöfnunum þá tók ég eftir að annar söngvarinn heitir El-nur. El þýðir Guð. Veit ekki með hitt nafnið hvort að það hefur líka einhverjar skýrskotanir í æðri heima en nennti bara ekki að gá að því að sinni (ég er ekki fullkomlega snarbrjáluð enn!)
.
Norge – Maria
Umm, María guðsmóðir, María Magdalena… möguleikarnir eru endalausir þegar kemur að nafninu María. En ég tel gott að hafa það með í þessari upptalningu, og ekki veitir af innan um öll þessi siðspilltu goð Babylóníu og Egyptalands! Heilög guðsmóðir veri með oss, ég segi það satt.
.
Pólland – Isis Gee
Söngkonan með brúnkukremið og hrukkóttu húðina kallar sig eftir egypsku ofurgyðjunni sem allir þekkja. Ég er ekki alveg að nenna að skrifa mikið meira en þið skiljið alvöru málsins.
.

.
Rúmenía – Nico & Vlad
Ég hafði þetta nú bara með vegna þess að söngvarinn heitir sama nafni og Dracula greifi, nefninlega Vlad. Vlad greifi fékk viðurnefnið stjaksetjarinn (the impaler) vegna þess hvernig hann pyntaði óvini sína.
*********************************************
Ég er svo þakklát fyrir það að einhverjir nenni að pæla í eurovision með mér að ég ætla að vísa ykkur á vefsíðu sem fjallar um pyntingaraðferðir miðalda en vara ykkur alveg rosalega við fyrst. Ég er alveg hrikalega mikil áhugamanneskja um allt miðaldatengt og ég get auðveldlega lesið um algjöran viðbjóð, en þessar nákvæmu lýsingar voru bara einum of fyrir mig. Ég las um 3-4 aðferðir og gafst svo upp og hef ekki haft sama áhuga á þessum málum síðan. Þessi síða eyðilagði hreinlega allt! En sadistar geta án efa notið þessa MJÖG, MJÖG VEL.
.
Ofsóknir gegn kristnu fólki
Ég býð ykkur að fljúga yfir til hennar Lindu og lesa um það sem er að gerast á Indlandi. Því miður er þetta svo langt í frá að vera einsdæmi.
Hatrið og heiftin fer allsstaðar vaxandi, einsog hefur verið spáð….
Greinin hennar Lindu – athugið, ef þið viljið hjálpa heiminum og okkur öllum þá læturðu þetta ekki framhjá þér fara!
***********************************************
Svo voru líka nýnasistar að berja femínista í Svíþjóð um daginn, það er aldeilis fjör :/
Í tilefni af vinsældum ritskoðunarviðhorfa á fróni
Ég var að rekast á frétt áðan um Scientology og mótmæli gegn þeim sem áttu sér stað á Englandi nýlega. Hópur sem kallar sig Anonymous hefur verið mjög duglegur að berjast gegn S og skipuleggur allskonar aðgerðir, bæði á netinu og í raunheimum.
Einn fimmtán ára drengur sem tók þátt í mótmælunum og bar skilti sem á stóð að S væri költ fékk aðvörun frá löggukonu og ég á svo gott sem ENGIN ORÐ yfir það sem gerðist næst! Honum var sýndur þessi miði

og núna er hann kannski að fara fyrir rétt!!!
fréttin tekin af religionnewsblog:
Within five minutes of arriving, the teenager was approached by a female police officer and told he was not allowed to use the word “cult” to describe Scientology, and that the Inspector in charge would make a decision. Soon afterwards officers again approached, read Section 5 of the Public Order Act 1986 and handed him this notice.
The Act makes it an offence to display “any writing, sign or other visible representation which is threatening, abusive or insulting, within the hearing or sight of a person likely to be caused harassment, alarm or distress thereby”.
In response, the teenager quoted back a High Court judgement from 1984. Justice Latey repeatedly said in a family division case that Scientology was a “cult” – one that was “immoral”, “socially obnoxious”, “corrupt”, “sinister” and “dangerous”.
Mér finnst þessi strákur æðislegur og auðvitað styðja allar siðferðislega meðvitaðar manneskjur þessar aðgerðir mótmælendanna! Hvað annað?
Ég gæti varla sleppt því undir neinum kringumstæðum að móðga þessa költista og þeirra viðbjóðslega költ, ekki frekar en Dokksi getur sleppt því að móðga ýmis skipulögð trúarbrögð og fylgjendur þeirra. Live and let live segi ég, svo lengi sem enginn er beittur ofbeldi né gerð tildrög að því að meiða einhvern. Ég myndi ráðast að þeim fyrir að tilheyra stofnun sem hefur raunverulega drepið fólk fyrir að reyna að hætta, og sem hefur eyðilagt óteljandi fjölskyldur og gert margt margt fleira illt. Peningahliðin og hvernig fólk er gert gjaldþrota fyrir svokallað “nám” er svo önnur hlið á hryllingnum sem ég nenni ekki einu sinni að fara útí. Það kemur mér ekkert við hverju þau trúa (þó að ég ætti að mega hlæja að því eins mikið og mig lystir og skrifa um það líka, jafnvel á stór spjöld) en það er allt annað að gagnrýna þau fyrir ofbeldi, kúgun og annan slíkan viðbjóð – EINHVERJIR VERÐA AÐ STANDA UPP OG VEIFA FINGRINUM FRAMAN Í ILLSKUNA!!!
Ég veit um fólk sem lífið hefur hreinlega verið eyðilagt hjá af Scientology, það er fólk sem hefur eytt bestu áratugum ævi sinnar í að vinna hroðalega erfiðisvinnu fyrir költinn, án þess að fá laun, og þegar þau hafa reynt að hætta í honum (margoft) hefur þeim verið hótað öllu illu og fjölskyldum þeirra líka
Þetta er svo sorglegt og ógeðslegt…. og það eina sem maður getur gert er að kalla þetta “hættulegan költ” – er það nú orðið glæpsamlegt líka?
Only in the UK……..
But coming to Iceland real soon….
Eina ástæðan fyrir því að liðið móðgast er vegna þess að þetta er satt.
Ísland er ekki orðið jafn slæmt í ritskoðun, kúgun og bilun einsog Bretland, en við nálgumst það óðfluga, sérstaklega ef maður fer að spá í því sem hefur verið að gerast á blog.is og hvernig margir virðast hreinlega bara sáttir við að lokað sé á blogg eða aðgangur fólks skertur vegna skoðana. Ég get ekki fengið heilann minn til að meika sense úr þessu. Þetta fólk sem segir að svona lagað sé nauðsynlegt eða af hinu góða er á móti málfrelsi og tjáningarfrelsi, það er það eina sem hægt er að segja um þau. Því miður. Ég ber enga virðingu fyrir þeim né þeirra skoðunum, hversu lengi ætli það verði í lagi fyrir mig að segja það?
Þessi miði er svo ógnvekjandi
En allavega, 15 ára strákurinn er algjör hetja
Hann mun sigra þetta, ég hef ekki trú á öðru.

Eurovision gagnrýni – 1.hluti
Ég er með rosalegt samviskubit! Ég er sko u.þ.b. að byrja þetta nýja bloggævintýri mitt á óvinsælasta hlut í heimi, rausi um Eurovision…
Í kvöld var fyrsti undanúrslitaþátturinn, ég vissi ekki að það væru tveir og hafði ekki hugmynd um að þetta væri í kvöld, fyrren rétt áður en keppnin hófst. Sem betur fer. Það munaði afar mjóu að ég næði ekki einu sinni að horfa.
Ég horfi sko alltaf á eurovision (það eru næstum trúarbrögð) og byrja að undirbúa mig fyrir keppnina mörgum vikum, stundum mánuðum, áður. Í ár varð hinsvegar breyting á því og ég var ekki búin að heyra nein lög, hafði bara einhvernvegin ekki sama áhuga fyrir þessu og vanalega.
Úff, eftirá að hyggja vildi ég eiginlega að ég hefði vitað hvað þetta átti eftir að verða ógeðslega slæmt… þá hefði ég getað undirbúið mig fyrir þessa upplifun.
Allavega, ég ætla að gagnrýna hvert einasta lag (ég skrifaði glósur meðan ég var að horfa, endilega hringið á Klepp) og gefa þeim einkunnir á skalanum 1-10
Þetta verður samt ekki neitt langt þannig að þið getið andað rólega (ég er eins örlát og hugsanlegt er á stig, ég vil ekkert heitar en að lögin séu góð)

Þetta er dæmt útfrá útliti, kúlheitum, lagi og söng.
Montenegro – bleh 2/10
Israel – skít, skít, skítsæmilegt, fær 2 aukastig fyrir fallega málið 4/10
Eistland – mjög ógirnilegt og sveitt 0/10
Moldavía – æi nei 1/10
San Marino – bleh 3/10
Belgía – ef ég hefði verið í salnum og með byssu hefði flytjandi þessa lags ekki lifað lengi
0/10
Azerbaijan – eg er búin að finna lagið mitt! angels and demons, djöfladýrkun á sviðinu og allt, áfram Azerbaijan! fær sterka einkunn 7/10 (eftir að ég ræddi málið við vinkonu mína, eurovisionsérfræðing með meiru, ákvað ég að svissa einkunn þessa lags og annars lags – þetta er samt ennþá lagið mitt, mér fannst það sko útúrgeggjað á sviðinu og stórkostleg frumraun þessa áhugaverða lands, en Finnland átti tónlistarlega séð stigin frekar skilið)
Slóvenía – var örlítið skárra en Noregur, og fær hálft stig af 10 mögulegum.
Noregur - horror, engin orð fá því lýst nema kannski úúú (söngkonan sagði það aftur og aftur) 0/10
Pólland – brúnkuskrímslið sem reis úr hafinu, viðbjóður kvöldsins 0/10 (ég hef yfirleitt haldið með Póllandi, vonandi er þetta lag bara undantekning, ég má sko ekki við því að missa traust á fleiri þjóðum tónlistarlega séð því þá verður bara Úkraína eftir!)
Írland – ég hló að þessum fjárans kjúklingi og hækkaði í botn og byrjaði að rugga mér og hreyfa hendurnar, skiljanlega, það var búið að vera svo leiðinlegt frammað þessu! 6/10 , textinn var líka fyndinn. Er illa svikin yfir því að það hafi ekki komist í úrslit
það hefði verið svo fyndið að sjá dúkkuna taka við verðlaununum, hehe.
Andorra - ok þetta var ömurlegt en söngkonan er sæt og ekki að deyja úr glötun, og gef ég þessu 2/10 bara fyrir það.
Bosnia-Herzegovina – á þessum tímapunkti var ég farin að grípa í öll hugsanleg hálmstrá sem afsökun fyrir hærri stigagjöf, veit ekki hvort þetta var rökrétt en hér hef ég engu að síður skrifað 5/10 (í glósunum stendur: bara lagið, allt hitt vann á móti þeim)
Armenía – úff 0/10
Holland - alltaf sami gamli leiðindahávaðinn frá þeim 1/10
Finnland – hú-ha, ofurflott, sérstaklega söngvarinn, fegurð hans og kynþokki spiluðu stóra rullu í stigagjöfinni, þeir fá 8/10 – ég og vinkonan sem ég minntist á áðan ætlum að halda með þessu og rífast um hvor okkar fær að vera með söngvaranum (hún er gift þannig að ég er sjú-in)
Rúmenía – ekki leist mér á söngvarann en mömmu fannst hann algjört hottie! hún fyrirgaf honum meiraðsegja það að vera í gallabuxum (??) og rausaði stjórnlaust um að kellingin væri að skemma lagið
– fær 2/10 bara fyrir mömmu
Rússland – fyrrverandi hottie-ið hann Dima Bilan hefur aldeilis elst síðan hann söng sig inní, öh, sál mína? árið 2006… 2/10 vegna fornrar fegurðar
Grikkland – viðbjóður og lágkúra, það ætti að banna því að taka þátt 0/10 (Grikkland var einu sinni uppáhalds landið mitt í keppninni, útaf tungumálinu, en eftir að shake it lagið kom hafa þeir verið að eyðileggja allt, skil ekki svona rugl)

Ég er ekki að djóka með þessar lágu einkunnir og reyndi allt til að hækka þær….
Það er fáránlegt að svona mörg lög hafi þurft að komast áfram uppúr þessum riðli
Það skemmdi bara svo margt þegar öllum þjóðunum var leyft að syngja á ensku, það var svo heillandi að þurfa ekki að skilja textann.
Ef fram heldur sem horfir þá verður þetta ein allra versta eurovisionkeppnin í áraraðir.
Góð Eurovision keppni er sko ef það eru 1-3 verulega góð lög (9-10 stig á mínum skala) og kannski 2-5 skítsæmileg (7-8 stig)
Jæja þá er þetta komið útúr systeminu, þartil á fimmtudaginn (held ég)
Enn og aftur biðst ég forláts, og ég bið mína háæruverðugu gesti innilega að afsaka þessa lágkúru.
Hressið ykkur á Verka, drottningu eurovision: